<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T05:50:41Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/15562" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/15562</identifier><datestamp>2018-10-12T10:24:12Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hermann Ingi Gunnarsson 1974-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þóroddur Sveinsson 1956-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Aukin flokkun og endurvinnsla úrgangs hefur fengið mikla athygli á síðustu misserum.&#xd;
Lífrænn úrgangur er hátt í 30% af heildarúrgangi heimila og fyrirtækja og í þessum úrgangi&#xd;
liggja mikil verðmæti. Með hækkandi urðunarkostnaði hafa menn leitað leiða til að draga úr&#xd;
kostnaði við urðun og draga úr því magni sem urðað er. Margfalt meira magn er endurunnið í&#xd;
dag en gert var hér á landi fyrir allnokkrum árum. Jarðgerð á lífrænum úrgangi hefur rutt sér&#xd;
til rúms hér á landi en við jarðgerð verður til afurð sem kallast molta. Víða erlendis er molta&#xd;
notuð í landbúnaði sem annaðhvort áburður eða jarðvegsbætir. Lítið af rannsóknum er til um&#xd;
áburðargildi moltunnar og var það kveikjan að þessu verkefni.&#xd;
Lagðar voru út þrjár eins tilraunir á þremur túnum, og hver á mismunandi jarðvegsgerð á&#xd;
Möðruvöllum í Hörgárdal. Meðferðarliðirnir voru 8; með moltu, mykju eða tilbúnum áburði í&#xd;
mismunandi magni. Alls voru reitirnir 72 og var hver reitur sleginn tvisvar yfir sumarið.&#xd;
Markmið verkefnisins var að kanna hver áburðarsvörun moltunnar væri í samanburði við&#xd;
mykju og tilbúinn áburð. Einnig að kanna hvaða ávinningur fælist í því að nota moltu miðað&#xd;
við tilbúinn áburð.&#xd;
Helstu niðurstöður eru þær að molta skilar ekki aukinni þurrefnisuppskeru miðað við mykju.&#xd;
Tilbúinn áburður skilar mun betur þurrefnisuppskeru eftir hvert kg köfnunarefnis en moltan.&#xd;
Ekki er neinn ávinningur til skamms tíma af notkun moltu ef miðað er við tilbúinn áburð og&#xd;
moltan hentar ekki sem áburður sem nýtast þarf skjótt. Næringarefnainnihald í moltunni er&#xd;
mjög breytilegt og ómögulegt að setja föst áburðargildi fyrir moltu en með ítarlegum&#xd;
efnagreiningum er hægt að áætla gróft það efnamagn sem moltan skilar.&#xd;
Kalí er með einna mestan leysanleika í moltunni en mjög lítið er hins vegar af kalí í moltu.&#xd;
Mjög mikilvægt er að þroski moltunnar fari rétt fram og moltan sé búin að ná fullum þroska&#xd;
þegar hún er notuð af bónda eða öðrum aðilum. Hætta er á því ef moltan hefur ekki náð&#xd;
réttum þroska áður en henni er dreift á tún að niðurbrotsörverur taki til sín köfnunarefni frá&#xd;
jarðveginum og dragi þannig úr framboði köfnunarefnis fyrir plönturnar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2013-06-05T15:20:20Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2013-06-05T15:20:20Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2013-06-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2013-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/15562</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áburður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Molta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Túnrækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Uppskera</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Jarðefnafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Jarðvegur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áburðargildi moltu í túnrækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>