<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T05:57:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/16201" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/16201</identifier><datestamp>2019-08-30T07:53:54Z</datestamp><setSpec>com_1946_6867</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_34317</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Tinna Dögg Guðmundsdóttir 1987-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Axel Hall 1971-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Mikil gróska hefur átt sér stað í kvikmyndagerð á Íslandi síðastliðinn áratug. Algjör sprenging varð í aðsókn erlendra verkefna sumarið 2012 þegar fjórar stórmyndir voru teknar upp hér á landi. Ferðaþjónusta utan háannatíma hefur aukist sem líklega má að einhverju leyti rekja til þeirrar öflugu landkynningar sem felst í kvikmyndum. Tímabundin endurgreiðsla vegna kvikmyndagerðar var samþykkt á Alþingi árið 1999 og síðan þá hafa umsóknir um hana margfaldast. Hlutfall endurgreiðslunnar, sem nú er 20%, hefur tvisvar verið endurskoðað og hækkað frá upphaflegri lagasetningu. Markmið þessarar rannsóknar var í fyrsta lagi að kanna hvort að forsendur endurgreiðslunnar ættu enn við, það er hvort tímabært væri að leggja hana niður þar sem tilvist hennar hefði ekki ákvarðandi áhrif á komu erlendra verkefna; hvort hér gæti þrifist kvikmyndagerð, innlend sem erlend, óháð endurgreiðslu. Í öðru lagi hvort nauðsynlegt væri að hækka endurgreiðsluna í samræmi við fyrri rannsóknir. Hvað það varðar var litið til hlutfallslegra yfirburða og samkeppnishæfni kvikmyndagerðar hérlendis til samanburðar við annars staðar. Stuðst var við eigindalega rannsóknaraðferð í formi djúpviðtala. Úrtakið markaði ákveðinn þverskurð sérfræðinga er koma að endurgreiðslunni með ýmsu móti. Samkvæmt niðurstöðum má merkja ákveðna hlutfallslega yfirburði Íslands sem tökustaðar. Er það helst fjölbreytt náttúra sem á sér ekki hliðstæðu, hæft og sveigjanlegt starfsfólk og síðast en ekki síst endurgreiðslan sem þykir einföld, gagnsæ og fljót í afgreiðslu. Ísland er að mörgu leyti samkeppnishæft en þar sem erlendir framleiðendur gera ráð fyrir einhvers konar ívilnun kæmist landið ekki í gegnum trektina ef mönnum stæði ekki til boða endurgreiðsla hér. Flestar þjóðir bjóða upp á einhvers konar ívilnun vegna kvikmyndaframleiðslu. Í stað þess að taka þátt í samkeppni hæstbjóðanda skal leggja kapp í að viðhalda þeirri sérstöðu sem felst  í einföldu regluverki og skjótri afgreiðslu sem aðrar þjóðir eiga erfitt með að leika eftir.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2013-08-20T11:57:24Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2013-08-20T11:57:24Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2013-08-20</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2013-05-16T14:16:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2013-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/16201</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kvikmyndagerð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Eigindlegar rannsóknir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjármál</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi: Nauðsynlegar eða óþarfar?</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>