<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T23:08:50Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/16334" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/16334</identifier><datestamp>2018-10-15T14:37:23Z</datestamp><setSpec>com_1946_130</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_132</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ágústa Jónsdóttir 1971-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Vilborg Jóhannsdóttir 1953-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Viðfangsefni þessa verkefnis er að greina starfsemi Fjölgreinadeildar Lækjarskóla í Hafnarfirði úr frá skólastefnu Hafnarfjarðar. Tilgangurinn er að varpa ljósi á hvort þörf sé á úrræði eins og þessu innan skólakerfisins. Áherslan verður lögð á þau lög og reglur sem tilheyra grunnskólunum og hugmyndafræðina sem Fjölgreinadeildin vinnur eftir. Þar sem um það bil 90% nemenda sem lokið hafa námi í deildinni fara áfram í framhaldsskóla verður farið ýtarlega í þær leiðir sem Fjölgreinadeildin fer til að sporna við brottfalli nemenda. Í rannsókninni var rætt við aðila sem koma að starfsemi Fjölgreinadeildarinnar á einn eða annan hátt. Lagðir voru spurningalistar fyrir skólastjórnendur, félagsráðgjafa í Hafnarfirði og foreldra nemenda í deildinni. Auk þess voru tekin viðtöl við nemendur deildarinnar. &#xd;
	Markmið með þessu verkefni er að skoða starfsemi deildarinnar og greina þau lykilatriði sem stuðst er við til að sporna við brottfalli grunnskólanemenda. Farið verður í lög og reglugerðir sem lúta að starfsemi grunnskólanna, sem og kenningar um unglingsárin. &#xd;
	Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að það sé nauðsynlegt að bjóða upp á úrræði eins og Fjölgreinadeildina. Viðmælendur voru allir sammála um að starfsemi deildarinnar skili árangri. Foreldrar nemendanna töluðu flest allir um að mikil breyting hafi orðið á þeirra barni, breyting til batnaðar, bæði námslega og félagslega. Nemendur eru sterkari eftir veru sína í deildinni og hafa áhuga á að fara áfram í framhaldsnám. Deildarstjóri Fjölgreinadeildarinnar er þroskaþjálfi og sinnir hún starfinu af heilum hug og stendur vörð um réttindi nemenda sinna. Lykilatriði í starfi þroskaþjálfa er réttindagæsla og að stuðla að jákvæðum viðhorfum og skilningi í garð fólks með sérþarfir. Góð samskipti við nemendur, foreldra og starfsfólk skipta miklu máli. Niðurstöður í viðtölum við nemendur deildarinnar voru mjög jákvæðar þar sem allir sögðu að þeim liði vel í deildinni og ætluðu sér að fara í framhaldsskóla þegar námi í deildinni lyki.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2013-09-02T11:28:31Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2013-09-02T11:28:31Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2013-09-02</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2013-05-24T11:46:08Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2013-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/16334</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þroskaþjálfafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Brottfall úr skóla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Grunnskólanemar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjölgreinadeild (Lækjarskóla)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Fjölgreinadeild Lækjarskóla í ljósi skólastefnu Hafnarfjarðar : leiðir til að koma í veg fyrir brotthvarf nemenda úr grunnskólum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>