<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T22:52:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/16526" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/16526</identifier><datestamp>2018-10-12T10:34:26Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4483</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hafdís Sturlaugsdóttir 1962-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Anna Guðrún Þórhallsdóttir 1957-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Móðuratferli og tengslamyndun móður og lamba hafa lítið verið rannsökuð á&#xd;
Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka þessa tvo þætti, ásamt því að&#xd;
kanna hvort langtímatengsl væru til staðar. Bornir voru saman hópar af&#xd;
venjulegum ám og forystuám. Rannsóknin var gerð á tveimur bæjum á&#xd;
Ströndum, í Húsavík þar sem var hópur af venjulegum ám og á Innra Ósi, þar&#xd;
sem bæði var hópur af venjulegum ám og forystuám.&#xd;
Sauðburður var myndaður og burðaratferli ásamt atferli lambanna skoðað. Þegar&#xd;
lömbin voru vikugömul var kannað hversu sterk tengsl væru milli lamba og&#xd;
móður í þrautabraut. Fylgst var með ánum fyrsta sólarhringinn eftir að þær komu&#xd;
út og kannað hversu vel ærnar héldu lömbunum hjá sér. Að lokum var fylgst&#xd;
með ánum á frjálsri sumarbeit og þá sérstaklega kannað hvort skyldar ær héldu&#xd;
sig á svipuðum slóðum á beitinni.&#xd;
&#xd;
Helstu niðurstöður voru þær, að ekki var munur á milli hópa á körun lamba eða&#xd;
öðru burðaratferli, en burðaratferli íslenskar áa virðist svipa til burðaratferlis hjá&#xd;
Svarthöfðafé í Skotlandi (Scottish Blackface). Í þrautabrautinni kom fram að&#xd;
forystuærnar virtust tengdari lömbum sínum heldur en venjulegar ær og þær&#xd;
voru fljótari að finna lömbin. Fyrsta sólarhringinn úti voru það aftur á móti&#xd;
Húsavíkurærnar sem héldu lömbunum næst sér. Sumarbeitarsvæða ánna voru&#xd;
misstór. Húsavíkurærnar dreifðust á um 1200 ha en á Innra Ósi um 850 ha.&#xd;
Ættarhópar í Húsavík héldu að mestu saman á beit en meiri dreifing var á&#xd;
ættarhópum á Innra Ósi. Reiknuð stærð heimasvæða ánna var frá 100-1.950 ha.&#xd;
Mikilvægt er að kanna frekar burðaratferli íslenskra áa og þann einstaklingsmun&#xd;
sem þar virðist vera vegna mikilvægis þess fyrir lífslíkur lambanna jafnframt því&#xd;
að kanna nánar áhrifaþætti dreifingar sauðfjár í sumarhögum, hvort ættrækni,&#xd;
tengsl við landið eða gæði beitilands ráði þar mestu, vegna mikilvægis þess fyrir&#xd;
nýtingu sumarhaganna.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2013-09-17T14:44:38Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2013-09-17T14:44:38Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2013-09-17</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2008-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/16526</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ær</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lömb</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Atferlisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Forystufé</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sauðfé</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Man sauður hvar gekk lamb? Félagshegðun venjulegs fjár og forystufjár. Móðuratferli, tengslamyndun og samheldni í sumarhögum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>