<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T15:06:41Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/16590" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/16590</identifier><datestamp>2018-10-15T14:36:38Z</datestamp><setSpec>com_1946_130</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_132</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Auður Böðvarsdóttir 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Meyvant Þórólfsson 1951-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í verkefninu er leitast við því að svara rannsóknarspurningunni ,,Hvers eðlis er áhugahvöt meðal nemenda sem hafa fengið kennslu samkvæmt aðferðinni Stærðfræði byggð á skilningi barna?“ Framkvæmd var tilviksrannsókn í Melaskóla hjá nemendum í 5. bekk. Bekkurinn er undir umsjón Kristjönu Skúladóttur og hefur hún tileinkað sér kennsluhætti í stærðfræði sem byggð er á skilningi barna. Hugsmíðihyggja hefur verið helsta uppspretta hugmynda um að nemendur eigi að læra stærðfræði með skilningi. Það er ábyrgð kennarans að leiða nemendur upp á æðri stig hugsunar þar sem þeir eru í aðalhlutverki og kennarinn skapar viðeigandi aðstæður til náms. Gengið er út frá sama útgangspunkti og nemendur vinna að verkefnum á eigin forsendum til þess að þroskast í námi. Til þess að svara rannsóknarspurningunni var sjónum fyrst og fremst beint að innri og ytri áhugahvöt nemenda og mikilvægi tungumálsins í stærðfræðinámi.&#xd;
&#xd;
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að nemendur sem iðka stærðfræði undir slíkri leiðsögn reynast vera jákvæðir gagnvart námsgreininni stærðfræði og námi í henni. Þeim virðist bæði þykja skemmtilegt og hvetjandi að glíma við námsefnið á sínum eigin forsendum þar sem stuðst er við fjölbreyttar kennsluaðferðir. Innri áhugahvöt virðist ríkjandi meðal nemenda sem hafa fengið slíka kennsluhætti. Niðurstöður tilviksrannsóknarinnar eru einnig í samræmi við þær rannsóknir sem áður hafa verið gerðar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2013-09-23T08:59:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2013-09-23T08:59:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2013-09-23</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2013-05-21T10:15:41Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2013-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/16590</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Grunnskólakennarafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stærðfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áhugahvöt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhugahvöt meðal nemenda sem hafa fengið kennslu samkvæmt aðferðinni Stærðfræði byggð á skilningi barna (CGI)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>