<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T09:28:21Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/16902" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/16902</identifier><datestamp>2018-10-12T10:24:16Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sigríður Jóhannesdóttir 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Emma Eyþórsdóttir 1953-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">120 eininga ritgerð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Íslenska forystuféð er einstakur fjárstofn í heiminum og ekki eru til heimildir um erlend fjárkyn með sambærileg einkenni. Megin tilgangur þessa verkefnis er að afla gagna svo gera megi grein fyrir skyldleika innan stofnsins og í framhaldi af því koma með tillögur hvernig megi viðhalda stofninum um komandi framtíð án mikillar skyldleikaræktunar.&#xd;
Skil ætternisupplýsinga voru mun lakari en vonast hafði verið til í upphafi. Þær niðurstöður sem fengust úr þessu gagnasafni gefa ekki rétta mynd af íslenska forystufjárstofninum heldur sýnir skyldlieka þess hóps sem upplýsingar fengust um.&#xd;
Alls voru ætternisupplýsingar um 1164 einstaklinga í gagnasafninu og var meðalskyldleikaræktarstuðull innan þess 0,0105. Skyldleikaræktaðir einstaklingar voru 151 eða 13% af úrtakinu. Meðalfjöldi skyldleikaræktaðra einstaklinga voru 15 kindur á ári síðustu 7 árin, flestar fæddar árið 2002 en árin þar á undan voru þær mun færri. Meðal skyldleikaræktarstuðull fyrir skyldleikaræktuðu einstaklingana var 0,081. Hæsta gildið á skyldleikaræktarstuðli hjá skyldleikaræktuðum einstaklingi var 0,3438. Af þeim 464 lifandi einstaklingum sem upplýsingar fengust um voru 109 einstaklingar skyldleikaræktaðir eða um 33% af lifandi einstaklingum. Skyldleikaræktarstuðullinn fyrir lifandi einstaklinga er mun hærri en heildar skyldleikaræktarstuðullinn. Hlutdeild sæðingarhrúta í erfðamengi lifandi stofns er mun meiri hjá þeim hrútum sem notaðir hafa verið síðustu 10 árin en þeirra hrúta sem notaðir voru fyrstu árin á sæðingarstöðvunum. Sæðingarhrútarnir sýna nokkuð mikinn skyldleika innbyrðis.&#xd;
Áframhaldandi viðhald stofnsins felur í sér stjórnun á ræktun hans. Ákjósanlegasta leiðin er kom á skýrsluhaldi fyrir stofninn og fá nákvæmari ætternisupplýsingar sem styrkja stöðu sæðinga. Hefja þarf varðveislu á erfðaefni úr stofninum bæði til að styrkja hann og sem tryggingu á viðhaldi stofnsins í framtíðinni. Út frá ætternisupplýsingunum þarf að gera ræktunaráætlun, þar sem fyrirfram ákveðnar paranir færu fram og þannig reyna að koma í veg fyrir aukningu í skyldleikarækt.&#xd;
Til að styrkja þetta þyrfti að endurvekja Forystufjárræktarfélag Íslands og stuðla þannig að góðri kynningu stofnsins, vekja almennan áhuga á honum og varðveita menningarlegt gildi hans.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="sponsorship" lang="is">Erfðanefnd landbúnaðarins</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2013-11-21T14:59:24Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2013-11-21T14:59:24Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2013-11-21</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2004-04</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/16902</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sauðfjárrækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Forystufé</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Erfðafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stofnstærð (vistfræði)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynbætur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Forystufé : skyldleiki og framtíð stofnsins</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>