<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T00:54:13Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/17068" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/17068</identifier><datestamp>2018-10-15T09:49:32Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Dagný Sif Snæbjarnardóttir 1986-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Harpa Lind Örlygsdóttir 1984-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Helga Sól Ólafsdóttir 1970-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Meginviðfangsefni heimildaritgerðar þessarar var að gera grein fyrir þunglyndi og kvíða hjá konum á meðgöngu og eftir barnsburð út frá félagslegum sjónarmiðum. Greint var frá því hvaða stuðningsúrræði eru í boði í samfélaginu fyrir barnshafandi konur. Að auki voru sértækari stuðningsúrræði fyrir konur sem greinast með þunglyndi og/eða kvíða á meðgöngu og/eða eftir barnsburð skoðuð. Hér á landi fæddust árið 2012 alls 4533 lifandi börn. Síðastliðin ár hefur verið algengara að börn fæðist utan hjónabands en innan þess. Að eignast barn er stór viðburður í lífi flestra en upplifunin getur þó verið mismunandi milli einstaklinga, flestir upplifa barneignir sem gleðiviðburð en til eru þeir sem gera það ekki.&#xd;
Markmið höfunda ritgerðarinnar var að gera grein fyrir algengi þunglyndis og kvíða á meðgöngu og eftir barnsburð. Auk þess var skoðað hvaða áhættuþættir geta valdið því að konur þjáist af þunglyndi og kvíða á meðgöngu og/eða eftir barnsburð og jafnframt sýnt fram á það hversu mikilvægur félagslegur og samfélagslegur stuðningur er fyrir konur á þessum tíma.&#xd;
Niðurstaða ritgerðarinnar var sú að félagslegur stuðningur frá maka, fjölskyldu og vinum geti komið í veg fyrir að konan fái þunglyndi og kvíða á meðgöngu og/eða eftir fæðingu barnsins.  Að auki skiptir miklu máli að samfélagið styðji konur á meðgöngu sem og eftir barnsburð. Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi er algengur sjúkdómur sem nauðsynlegt er að vera meðvitaður um og mikilvægt er fyrir konur að leita sér hjálpar ef þær finna fyrir einkennum þunglyndis og/eða kvíða á meðgöngu og/eða eftir barnsburð en hér á landi eru mörg sértæk stuðningsúrræði í boði fyrir konur sem glíma við þennan vanda.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2014-01-09T13:29:52Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2014-01-09T13:29:52Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2014-01-09</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2014-01-09T13:27:27Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2014-01</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/17068</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsráðgjöf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fæðingarþunglyndi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meðganga</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kvíði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Þunglyndi og kvíði á meðgöngu og eftir barnsburð. Félagslegur stuðningur og úrræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>