<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T23:55:06Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/17219" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/17219</identifier><datestamp>2018-10-12T10:33:27Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4484</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sólveig Ólafsdóttir 1989-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hlynur Óskarsson 1960-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessu verkefni verður leitast við að leggja mat á áhrif hinna víðtæku framræslustarfa, sem ráðist var í á Íslandi á 20. öld í þeim tilgangi að þurrka upp votlendi og breyta í ræktanlegt land. Gerð verður tilraun til að svara tveimur rannsóknarspurningum: Hvaða áhrifaþættir ýttu undir framræslu votlendis á 20. öld? Hverju skilaði framræsla í Mýrasýslu 1930-1990, t.d. hvað varðar aukinn heyfeng, stærri bústofn eða mannfjölda?&#xd;
Til að leita svara við spurningunum er notast við gögn úr ýmsum áttum sem gefa heildstætt yfirlit yfir tímabilið 1930-1990. Sagnfræðileg yfirlitsrit eru notuð auk annarra bóka, greina og blaða frá ýmsum tímum. Hagtölur landbúnaðarins eru notaðar til að kanna áhrif framræslu í Mýrasýslu á tímabilinu. Ákveðnir þættir eru hafðir til grundvallar til að meta áhrifin; rúmmál opinna skurða, magn töðu, magn útheys, stærð nýrækta og stærð bústofns. Hagfræðilegra gagna var aflað úr Búnaðarskýrslum Íslands sem Hagstofan gaf út, Búnaðarriti Búnaðarfélags Íslands, skýrslum forðagæslumanna í Mýrasýslu og hjá Matvælastofnun. Við framsetningu og greiningu á gögnunum var bæði notast við hugbúnaðinn Microsoft Excel og SAS Enterprice Guide. Hluti verkefnisins er að nota landupplýsingakerfið ArcGIS til að greina breytingar á landnýtingu votlendissvæða, en í þeim hluta eru nokkur býli í Mýrasýslu tekin fyrir. Skurðir á býlunum þremur voru aldursgreindir gróflega og flokkaðir í þrjá flokka eftir því á hvaða tímabili þeir voru grafnir. Með þessu móti er auðveldara að átta sig á þróun framræslumála í sýslunni.&#xd;
Í ljós kom að áhrifaþættir sem ýttu undir framræslu votlendis á 20. öld voru margir, en þeir tengjast helst stjórnarfari og vélvæðingu. Þar má nefna áherslur þeirra ríkisstjórna sem ríktu á tímabilinu á uppbyggingu landbúnaðar, styrkveitingar til jarðræktar frá hinu opinbera, ráðstöfun Marshallfjárins til uppbyggingar í sveitum o.fl. Þessir þættir hljóta að hafa ýtt mjög undir framfarir í landbúnaði, og þar með framræslu í tengslum við ræktunarumbætur. Ekkert af þessu hefði þó verið mögulegt ef ýmiss konar vélar og jarðræktartæki hefðu ekki tekið að streyma til landsins um og eftir seinna stríð.&#xd;
Árangur framræslustarfa í Mýrasýslu virðist hafa verið þónokkur. Rúmmál skurða sýnir í flestum tilfellum talsvert sterka fylgni við aðrar breytur sem skoðaðar voru. Þetta á þó aðeins við um fyrri hluta tímabilsins, 1930-1965. Ekki reyndist marktæk fylgni milli rúmmáls skurða og annarra breyta á síðari hluta tímabilsins, 1966-1990. Óvíst er um orsakasamhengi, en niðurstöðurnar eru þær að áhrif og afrakstur skurðgraftar í sýslunni virðist vera nokkuð mikil á tímabilinu 1930-1965 en lítil á tímabilinu 1966-1990, hvað varðar þær breytur sem hér eru til umfjöllunar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2014-01-23T15:46:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2014-01-23T15:46:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2014-01-23</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2013-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/17219</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Votlendi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Framræsla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Jarðrækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landbúnaður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Ástæður og áhrif framræslu í Mýrasýslu 1930-1990</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>