<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-05T06:11:38Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/18496" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/18496</identifier><datestamp>2018-10-15T15:47:20Z</datestamp><setSpec>com_1946_2064</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2107</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Rebekka Hlín Rúnarsdóttir 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Áslaug Geirsdóttir 1955-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sædís Ólafsdóttir 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í ágúst árið 2010 var farinn rannsóknarleiðangur á vegum íslenskra og norskra stjórnvalda á Drekasvæðið, Norður Atlantshafi. Markmið hans var að safna gögnum um Jan Mayen svæðið með áherslu á mögulega olíuvinnslu. Jarðeðlisfræðilegar mælingar hafa áður verið framkvæmdar í þessum tilgangi á svæðinu. Alls voru teknir 39 djúpsjávarkjarnar og neðstu hlutar þeirra skoðaðir með tilliti til hugsanlegra kolvetnisauðlinda. Efri hlutar kjarnanna nýtast því til rannsókna á fornloftslagi, breytingum á straumakerfum og sjávarhita. Í Norður Atlantshafi og nágrenni hafa áður verið teknir sjávarsetskjarnar í sama tilgangi.&#xd;
Í þessu verkefni er tekinn fyrir efsti hluti kjarna A2010-11-604 sem var 70 cm langur. Hann var mældur með GEOTEK og hlutaður niður á 0,5 cm fresti en þar af voru tíu sýni valin til frekari rannsókna. Þessi sýni voru frostþurrkuð, sigtuð og götungagreind. Götungar eru einfruma sjávarlífverur sem finnast hvarvetna á hafsvæðum jarðar. Svifgötungar hafast við í yfirborðslögum sjávar og stjórnast búsvæðadreifing þeirra af hita og seltu sjávar. Kjöraðstæður hverrar tegundar eru ólíkar og því geta hlutföll þeirra sagt til um breyttar umhverfisaðstæður. Algengasta svifgötungategundin í kjarna A2010-11-604 var Neoglobigerina pachyderma (v). Hátt hlutfall þessarar arktísku tegundar bendir til þess að sjávarstraumar af pólsvæðum séu og hafi verið ríkjandi á Drekasvæðinu. Hlutföll Globigerina bulloides benda þó til hlýnunar sjávar þegar nær dregur nútíma. Hátt hlutfall Globigerina quinqueloba fyrir um 8600 árum BP gefur vísbendingu um færslu pólskila yfir Drekasvæðið á þeim tíma. Fyrri götungarannsóknir gerðar í Norður Atlantshafi endurspegla að stórum hluta þessar sömu niðurstöður í breytingum á yfirborðshita sjávar á Nútíma.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2014-05-28T14:39:21Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2014-05-28T14:39:21Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2014-05-28</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2014-05-28T10:01:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2014-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/18496</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Jarðfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjávarhiti</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Drekasvæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjávarset</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Götungar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Breytingar á yfirborðshita sjávar á Nútíma á Drekasvæðinu, Norður Atlantshafi. Götungarannsókn á sjávarsetskjarna</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>