<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-18T20:46:32Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/18682" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/18682</identifier><datestamp>2018-10-12T10:18:28Z</datestamp><setSpec>com_1946_10520</setSpec><setSpec>com_1946_10473</setSpec><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_10525</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Hólum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Elin Margareta B Moqvist 1983-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sveinn Ragnarsson 1969-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">Útskrift frá:&#xd;
Háskólanum á Hólum - Hestafræðideild&#xd;
Landbúnaðarháskóla Íslands - Auðlindadeild</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ritgerð þessi greinir frá niðurstöðum úr könnun á fóðrun kynbótahrossa á Íslandi. Könnunin var gerð á tuttugu og þremur ræktunarbúum í mars 2014 og fengust upplýsingar um fóðrun á 85 kynbótahrossum. &#xd;
Markmið þessarar ritgerðar var að kanna fóðrun kynbótahrossa á Íslandi, hvaða fóður er gefið og á hvaða forsendum er verið að fóðra. Einnig að kanna hvort fóðrun í kringum kynbótasýningar sé frábrugðin fóðrun á undirbúningstímanum. &#xd;
Helstu niðurstöður könnunarinnar voru: fóðrunin er í öllum tilfellum einstaklingsbundin, byggir á holdastigi og yfirleitt er ekki notast við heyefnagreiningu. Algengasta gróffóðurstegundin var rúlluhey. Helmingur búanna gaf snemmslegið hey og hinn helmingurinn gaf síðslegið hey en flest búanna tóku tillit til orkunnar í innihaldi heysins og gáfu steinefna- og vítamínblöndu til að uppfylla þarfir hrossanna fyrir bætiefni. Algengast var að þátttakendur giskuðu á það heymagn sem var gefið en miðað við niðurstöður könnunarinnar þá var stóðhestum gefið 8,2 kg á dag af heyi en hryssum 6,4 kg og marktækur munur var á milli kynjanna hvað varðar gefið heymagn. Flest hrossanna voru þjálfuð fimm sinnum í viku í 30 mínútur í hvert skipti og viðmælendur álitu þjálfunarálagið vera í meðallagi erfitt/létt. Það voru 70% hrossanna sem fengu kjarnfóður og stóðhestar fengu að meðaltali 1,3 kg á dag en hryssurnar 0,9 kg á dag og marktækur munur var á kjarnfóðurgjöf milli kynja. Í flestum tilfellum var fóðruninni breytt einni til tveimur vikum fyrir kynbótasýningu og þá með aukningu í kjarnfóðurgjöf en minnkun í gróffóðurgjöf. Á sýningardaginn var gjöf oftast óbreytt m.v. venjulega fóðrun en hluti búanna færði til fóðrun eftir sýningartíma hestsins. &#xd;
Meginályktanir eru þær að fóðrun á kynbótahrossum virðist byggð á tilfinningu og sjónrænu mati þátttakenda en miðað við útlit og mat á holdastigi hrossanna þá voru þau vel fóðruð. Tækifæri liggja í aukinni efnagreiningu á heyi til að geta náð enn betri árangri í fóðrun sem ætti að skila sér í betri afköstum og vellíðan hrossanna. Heyefnagreining virðist vera vannýtt tól á meðal ræktunarbúa á Íslandi. Höfundur telur þörf á frekari rannsóknum á sviði fóðrunar kynbótahrossa til þess að hægt sé að stuðla að enn betri uppbyggingu á hrossum sem eiga að afkasta miklu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2014-06-05T14:23:13Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2014-06-05T14:23:13Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2014-06-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2014-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/18682</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hrossarækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fóðrun dýra</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þjálfun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynbótahross</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynbótamat</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fóðurblöndur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hey</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Könnun á fóðrun kynbótahrossa á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>