<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T22:26:24Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/1889" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/1889</identifier><datestamp>2018-10-15T15:16:28Z</datestamp><setSpec>com_1946_130</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_289</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author" lang="is">Hrefna Sigurðardóttir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor" lang="is">Guðrún Valgerður Stefánsdóttir 1954-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">M.Ed. í þroskaþjálfafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ritgerð þessi er í tveimur hlutum. Annars vegar fjalla ég um sögu fólks með þroskahömlun á Íslandi og dreg í því skyni sérstaklega fram sögu Kópavogshælis sem var lengi stærsta stofnunin hér á landi. Hins vegar skrifaði ég lífssögu Ólafs Guðmundssonar og birtist hún í seinni hluta ritgerðarinnar. Markmið sögunnar var að fá fram upplifun viðmælanda míns, Ólafs Guðmundssonar, á lífi sínu og aðstæðum og draga fram dæmi um hvernig þjónustu við fólk með þroskahömlun hefur verið háttað á Íslandi frá miðri 20. öld.&#xd;
Ég hóf þessa vinnu fyrir nokkrum árum og hef annars vegar byggt á verkefni sem unnið var vorið 2005 í námskeiði í eigindlegri aðferðarfræði og hins vegar á verkefni í fötlunarfræði sem var unnið árið á undan. Í upphafi var ætlunin að beina fyrst og fremst athyglinni að lífssögu Ólafs. Eftir að hafa rýnt í sögu Kópavoghælis og lesið um lífssögurannsóknir tók ég þá ákvörðun að fjalla bæði um opinbera sögu hér á landi og út frá henni skoða lífssögu Ólafs. &#xd;
Niðurstöður gefa til kynna að líf Ólafs hefur mótast af þeim valkostum sem honum stóðu til boða á hverjum tíma. Lög fram til ársins 1979 gerðu einungis ráð fyrir stofnabundinni þjónustu. Ný hugmyndafræði, sem kennd hefur verið við eðlilegt líf og samfélagsþátttöku, fór að ryðja sér til rúms á 6. áratug síðustu aldar. Hagsmunasamtök fóru þá að berjast fyrir breytingum á viðhorfum og þjónustu fyrir fólk með fötlun. Þrátt fyrir að svo hafi verið lítur út fyrir að framkvæmdin á þjónustunni hafi verið töluvert á eftir hugmyndafræðinni. Ólafur hefur til dæmis búið inni á mismunandi stofnunum stóran hluta af lífi sínu.&#xd;
Núgildandi lög eiga að tryggja fólki með fötlun, fulla þátttöku í samfélaginu, jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra þjóðfélagsþegna. Lífssaga Ólafs sýnir að hann hefur ekki haft tækifæri til fullrar þátttöku í samfélaginu. Lífskjör hans hafa færst í átt að jafnrétti og sambærilegra lífskjara en hann hefur lifað lífi sínu innan þeirra takmarkana sem samfélagið hefur sett fólki í hans stöðu.&#xd;
Lykilorð: Sólarhringsstofnun, fólk með þroskahömlun, lífssaga.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2008-09-12T14:08:44Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2008-09-12T14:08:44Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued" lang="is">2008-09-12T14:08:44Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri" lang="is">http://hdl.handle.net/1946/1889</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso" lang="is">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þroskaheftir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lífssögurannsóknir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Búseta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagslegar aðstæður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kópavogshæli</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Líf í ljósi sögu sólarhringsstofnunar : lífsaga Ólafs Guðmundssonar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" lang="is">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>