<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-01T00:11:20Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/19232" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/19232</identifier><datestamp>2018-10-15T08:57:43Z</datestamp><setSpec>com_1946_2003</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2005</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hanna Björg Konráðsdóttir 1983-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Atli Björn Þorbjörnsson 1976-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">Ritgerðin er lokuð til 2060</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Olíuiðnaður er atvinnugrein þar sem miklir efnahagslegir- og pólitískir hagsmunir togast á, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Olíuvinnsla krefst umtalsverða fjárfestinga en getur skilað miklum tekjum ef vinnanlegt magn finnst. Mikil tækifæri eru til aukinnar verðmætasköpunar í íslensku atvinnulífi ef leit á Drekasvæðinu við Jan Mayen ber árangur. Íslensk stjórnvöld hafa nú þegar gefið út þrjú rannsóknar- og vinnsluleyfi til kolvetnisvinnslu og er því brýnt að íslensk stjórnvöld móti stefnu um aðkoma sína að kolvetnisvinnslu.  Markmið þessarar ritgerðar er að skoða mögulegt hlutverk ríkisolíufélags í stjórnun og nýtingu kolvetnisauðlinda við strendur Íslands. Jafnframt verður skoðað með hvaða hætti íslenska ríkið getur stutt við uppbyggingu íslensks iðnaðar og þekkingar í olíuiðnaði og hvaða takmarkanir íslenska ríkinu eru settar með aðild að Evrópska efnahagssvæðinu. Reglur samningsins um Evrópska Efnahagssvæðið hafa mikil áhrif á starfsumhverfi fyrirtækja innan Evrópska efnahagssvæðisins, þar sem fjórfrelsisreglur  EES-samningsins veita einstaklingum og fyrirtækjum víðtækan rétt til að setjast að og eiga viðskipti yfir landamæri án hindrana.&#xd;
Aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu leiðir til þess að íslenska ríkið er skuldbundið til að tryggja samræmda beitingu reglna EES-samningsins í íslenskri löggjöf og að túlkun hans sé með samræmdum hætti. Að sama skapi mega aðgerðir íslenskra stjórnvalda ekki vera til þess fallnar að raska samkeppnisstöðu fyrirtækja á EES-svæðinu sem getur haft áhrif á viðskipti milli aðildarríkjanna. Nauðsynlegt er því að greina það svigrúm sem EES-samningurinn veitir ríkisreknum fyrirtækjum og stjórnvöldum til uppbyggingar íslensks atvinnulífs og með hvaða hætti ríkisolíufélag getur stuðlað að tækni- og þekkingaröflun sem hagnast getur samfélaginu til lengri tíma litið.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2014-06-30T11:02:49Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2014-06-30T11:02:49Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2014-06-30</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2014-05-28T00:47:02Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2014-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/19232</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Auðlindaréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Olíufélög</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Olíuvinnsla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Opinber fyrirtæki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hlutverk íslensks ríkisolíufélags í stjórnun og nýtingu kolvetnisauðlinda</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Role of a national oil company in petroleum sector in Iceland</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>