<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T18:43:52Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/19762" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/19762</identifier><datestamp>2018-10-15T08:56:20Z</datestamp><setSpec>com_1946_2003</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2004</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ingibjörg Sigurðardóttir 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Einar Karl Hallvarðsson 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Afturköllun starfsskírteina atvinnuflugmanna og flugumferðarstjóra er hér skoðuð í víðtækri umgjörð loftréttar/flugréttar. Atvinnuréttindi eru réttindi til að stunda tiltekna atvinnu, sem jafnan er efnahagslegur grundvöllur mannlegrar tilveru. Atvinnufrelsi er frelsi til að stunda þá atvinnu sem maður kýs sér. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 veitir því stjórnskipulega vernd, sbr. 1. mgr. 75. gr. Hvorki atvinnufrelsið né jafnræðisregla 65. gr. stjórnarskrárinnar standa því í vegi, að sökum almannahagsmuna geri lög kröfu um tiltekna þekkingu og þjálfun, líkamlegt og andlegt atgervi þeirra sem atvinnu stunda. Atvinnuréttindi eru því verðmæt réttindi, sem stjórnarskráin verndar sem „eign“, sbr. 1. mgr. 72. gr.&#xd;
Störfum flugmanna og flugumferðarstjóra fylgir mikil ábyrgð, því að hætta er á, að af þeim hljótist stórfellt tjón. Þess vegna þurfa flugmenn og flugumferðarstjórar að standast ströng próf til sönnunar því, að þeir hafi til að bera góða líkamlega og andlega heilsu, þekkingu og þjálfun. Til að tryggja þetta þurfa þeir að standast ströng próf og fá sérstök skírteini því til staðfestingar, sem þeir skulu ávallt bera á sér.&#xd;
Um gildi og gildistíma starfsskírteina þessara hafa verið settar ítarlegar lagareglur, og þá m.a. hvernig menn glata rétti til þeirra og hvernig þau sæta ógildingu/afturköllun. Reglur þessar er að finna í alþjóðlegum sáttmálum og stjórnsýslurétti einstakra ríkja. Kjarasamningar kveða einnig á um reglur af þessum toga. Þær endurspegla annars vegar kröfur flugöryggis og hins vegar kröfur atvinnuöryggis flugmanna og flugumferðarstjóra, og þar á milli getur myndast umtalsverð spenna.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="attachment" lang="is">Skráin er læst að ósk höfundar vegna viðkvæms efnis.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2014-09-16T11:24:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2014-09-16T11:24:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2014-09-16</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2010-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/19762</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Flugmenn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Flugumferðarstjórar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Starfsleyfi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kjaramál</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Uppsagnir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heilsufar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Afturköllun flugstarfaskírteina sökum heilsubrests</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Revocation of an airman certificate due to a health problem</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>