<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T16:44:38Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/19918" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/19918</identifier><datestamp>2025-09-10T13:55:48Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4484</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Guðrún Óskarsdóttir 1989-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hlynur Óskarsson 1960-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Borgþór Magnússon 1952-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Árið 1996 var skipuð svokölluð Votlendisnefnd sem hafði það hlutverk að stuðla að endurheimt hluta þess votlendis sem ræst hefur verið fram hér á landi (Nefnd um endurheimt votlendis, 2006). Fyrsta verkefni hennar var að fylla upp í framræsluskurði í Hestmýri í Borgarfirði haustið 1996 og fylgja endurheimtinni eftir með rannsóknum. Þar voru m.a. gerðar rannsóknir á jarðvatnsstöðu og gróðurfari (Borgþór Magnússon, 1998a) til að kanna hvort og hvernig gróðurfar mýrarinnar breytist í átt til fyrra horfs, fyrir tíma framræslu. Breytingar á gróðurfari í kjölfar endurheimtar votlendis taka allmörg ár. Rannsóknum í mýrinni var því haldið áfram sumarið 2011 þegar fimmtán ár voru liðin frá uppfyllingu skurðanna og þrettán ár frá síðustu gróðurfarsúttekt árið 1998. Í þessu verkefni voru rannsakaðar breytingar á gróðurfari frá 1996 til 2011 í Hestmýrinni með því að endurtaka gróðurþekju- og jarðvatnsstöðumælingar sumarið 2011 á sama hátt og 1996 og 1998 og bera niðurstöðurnar saman með fjölbreytugreiningu. Einnig var svokölluð WIV-votlendisvísitala (Inga Vala Gísladóttir og Hlynur Óskarsson, 2011) notuð til að einfalda samanburðinn og hjálpa til við túlkun á gróðurfarsbreytingum. Fjölbreytugreiningin sýndi að breytileiki í gróðurfari í mýrinni fylgdi helst jarðvatnsstöðu. Vatnsstaða hefur mikil áhrif á búsvæði plantna og því töluverð áhrif á gróðurfar. Þess vegna má draga þá ályktun að takist að hækka jarðvatnsstöðu í framræstri mýri hafi endurheimt mýrarinnar tekist. Haustið 1998 gerði mikið vatnsveður á Vesturlandi og það leiddi m.a. til flóða í Hestmýrinni. Þar sem vatnsrennsli var mest skolaðist fyllingarefnið úr skurðunum en það var í u.þ.b. helmingnum af framræsluskurðum mýrarinnar. Sá helmingur er því enn í framræstu ástandi en annars staðar í mýrinni þar sem endurheimt heppnaðist hefur jarðvatnsstaða hækkað. Á litlu svæði í suðaustanverðri mýrinni gætti aldrei áhrifa framræslu og jarðvatnsstaða þar hefur haldist stöðug. Með því að skoða breytingar í jarðvatnsstöðu frá 1996 – 2011 var hægt að skipta mýrinni niður í þrjú svæði; ávallt blautt svæði, endurheimt svæði og framræst svæði. Hægt var að bera gróðurfarsbreytingar milli þessara svæða saman á einfaldan hátt með því að skoða votlendisvísitölu hvers og eins þeirra, hvernig hún hækkar og/eða lækkar. Ef hún lækkar er hefur þurrlendisgróður aukist en ef hún hækkar hefur votlendisgróður aukist. Við samanburð svæðanna kom í ljós að gróðurfar ávallt blauta svæðisins hélst svipað milli áranna sem mælingar voru gerðar (1996, 1998 og 2011). Gróðurfar endurheimta svæðisins fór markvisst í átt til meiri votlendisgróðurs. Votlendisvísitala framræsta svæðisins hækkaði milli 1996 og 1998, í kjölfar endurheimtar, en lækkaði svo aftur á tímabilinu 1998 – 2011, eftir að það skolaðist úr skurðunum. Það bendir til þess að þegar fyllt var upp í skurðina hafi gróðurinn þar svarað hækkandi jarðvatnsstöðu eins og á endurheimta svæðinu, en þegar aftur skolaðist úr skurðunum og jarðvatnsstaða lækkaði færðist gróðurfarið aftur í átt að meiri þurrlendisgróðri. Vegna þessa breytileika í jarðvatnsstöðu er gróðurfarið í Hestmýrinni mjög fjölbreytt en þær breytingar á gróðurfari sem áttu sér stað frá 1996 til 2011 voru almennt í takt við breytingar á umhverfisaðstæðum á hverju svæði innan mýrarinnar. Ólíklegt verður að teljast að gróðurbreytingarnar séu að fullu yfirgengnar á svæðinu og því æskilegt að endurtaka rannsóknina að einhverjum árum liðnum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2014-10-15T09:52:30Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2014-10-15T09:52:30Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2014-10-15</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2011-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/19918</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Votlendi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Jarðvatnsstaða</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Endurheimt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Votlendisvísitala</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gróðurfar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hestmýri</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Gróðurbreytingar í kjölfar endurheimtar Hestmýrar, Borgarfirði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>