<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T21:35:56Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/19952" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/19952</identifier><datestamp>2025-09-11T13:59:36Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>com_1946_10520</setSpec><setSpec>com_1946_10473</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec><setSpec>col_1946_10525</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Hólum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Franziska Maria Kopf 1987-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sveinn Ragnarsson 1969-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Elisabeth Jansen 1968-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">Útskrift frá:&#xd;
Háskólanum á Hólum - Hestafræðideild&#xd;
Landbúnaðarháskóla Íslands - Auðlindadeild</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Nútíma hestamennsku fylgja miklir flutningar á hestum. Rannsóknir hafa sýnt að ýmsir þættirí flutningi geta verið streituvaldandi fyrir hesta. Hingað til hafa áhrif dempunar hávaðaáreitis í flutningi ekki verið könnuð sérstaklega. Markmiðið með rannsókn höfundar var að kanna hvort hægt sé að merkja áhrif af notkun eyrnatappa á hjartsláttaviðbrögð hrossa í flutningum og skoða þannig hversu mikil áhrif hávaðaáreiti í kerru hefur á stress hestsins. Í rannsókninni voru hjartsláttarviðbrögð hjá hestum í flutningi mæld, annarsvegar þegar hestarnir voru fluttir óvarðir í kerru, en hinsvegar þegar settir voru eyrnartappar í eyru hestanna til að dempa hávaðaáreiti. Þessar mælingar voru svo bornar saman. Í rannsóknina voru notaðir átta skólahestar frá Háskólanum að Hólum og voru þeir fluttir í hestakerru 25,4 km vegalengd, þrjá daga í röð. Polar hjartsláttarmælitæki var notað til að rannsaka breytingar á hjartsláttartíðni, tímabil milli hjartslátta og hjartsláttarbreytileika hjá hestunum meðan á flutningnum stóð. Hjartsláttarbreytileiki var metinn í gegnum fjórar breytur, 3 staðalfráviksbreytur og rót meðalferviks samfellds mismunar hjartsláttarbils. Hávaði í desíbelum (dB) og breytingar á hita- og rakastigi voru mældur í kerrunni auk breytinga á líkamshita og þyngd hestanna. Lagt var mat á svitamyndun og mælt hversu oft og mikið hestarnir skitu í flutningnum. Niðurstöður leiddu í ljós að meðalhjartsláttartíðni, mæld í slögum á mínútu (slm), lækkaði marktækt milli meðferða þannig að hún var lægri í flutningi með eyrnatöppum en án (p&lt;0,05). Tímabil milli hjartslátta mælt í millisekúndum (ms) lengdist marktækt í flutningi með eyrnatöppum miðað við flutning án eyrnatappa (p&lt;0,05). Hjartsláttarbreytileiki mældur í ms lengdist einnig tölulega í flutningi með eyrnatöppum miðað við flutning án eyrnatappa, en ekki var þar um marktækan mun að ræða (p>0,05). Á milli daga fannst marktækur munur á hjartsláttartíðni og hluta hjartsláttarbreytna (p&lt;0,05). Hestarnir léttust (p&lt;0,05) við flutninginn og líkamshiti hækkaði (p&lt;0,05). Hávaði inni í kerrunni mældist að meðaltali 99 dB á meðan á flutningi stóð. Í ljós kom að notkun eyrnatappa hjá hestum í flutningi leiðir til breytinga á hjartsláttartíðni og hjartsláttarbreytileika, sem bendir til þess að hávaði hafi áhrif á streitu hjá hrossum í flutningi. Notkun eyrnatappa til hljóðdempunnar gæti þannig minnkað álag á hesta í flutningum og gert þeim vistina bærilegri.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2014-10-23T13:08:21Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2014-10-23T13:08:21Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2014-10-23</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/19952</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Flutningur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stress</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hestur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hjartsláttarmælingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hávaði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Eyrnatappar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif notkunar eyrnatappa á hjartslátt hesta í flutningi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>