<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T06:50:23Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/20318" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/20318</identifier><datestamp>2018-10-15T11:24:22Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Árný Ósk Árnadóttir 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þórður S. Óskarsson 1950-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessari ritgerð er fjallað um rafrænar ráðningar (e. online recruitment; e-recruitment). Með rafrænum ráðningum er átt við aðferð þar sem Internetið er notað í ráðningarferlinu. Til dæmis til að auglýsa lausar stöður, afla umsækjenda, veita upplýsingar um starfsemi fyrirtækja/stofnana, taka á móti umsóknum og svo framvegis. Settar eru fram eftirfarandi rannsóknarspurningar; a) hvert er umfang rafrænna ráðninga á Íslandi, b) hverjir eru kostir og gallar rafrænna ráðningaraðferða og c) hvað ber að hafa í huga þegar aðferðirnar eru notaðar?&#xd;
   Við framkvæmd rannsóknar var notuð blönduð aðferð við gagnaöflun. Í fyrsta lagi var notuð megindleg aðferð þar sem fyrirtæki svöruðu spurningakönnun. Í úrtaki rannsóknar voru 104 fyrirtæki á lista Frjálsrar verslunar yfir 300 stærstu fyrirtækin á Íslandi árið 2014. Þátttökufyrirtæki voru 49 sem gerir svarhlutfall 47%. Í öðru lagi var notuð eigindleg aðferð þar sem fjórir sérfræðingar í ráðningum voru teknir í einstaklingsviðtöl. &#xd;
   Helstu niðurstöður leiddu í ljós að rúmlega 80% fyrirtækja hafa eigin ráðningarvefsíðu og rafrænan gagnagrunn fyrir umsækjendur. Þar að auki tekur mikill meirihluti fyrirtækja (70%) á móti rafrænum umsóknum í langflestum tilfellum. Notkun samfélagsmiðla hefur farið vaxandi undanfarin ár en sú ráðningaraðferð er þriðja árangursríkasta aðferðin við öflun umsækjenda samkvæmt niðurstöðum rannsóknar. Af þeim fyrirtækjum sem nota samfélagsmiðla í ráðningarferlinu voru Facebook (47%) og LinkedIn (33%) vinsælastir. Hátt hlutfall fyrirtækja (82%) taldi líklegt að þau myndu leggja meiri áherslu á eigin heimasíðu varðandi ráðningar næstu tveimur til þremur árum. Hvað varðar helstu kosti og galla rafrænna ráðninga þá töldu viðmælendur kostina fyrst og fremst felast í skilvirkni og vinnsluhraða. Gallar rafrænna ráðninga felast síðan aðallega í því að aðferðin geti mismunað eldra fólki sem skortir tölvukunnáttu. Að mati viðmælenda þurfa ráðningaraðilar helst að hafa í huga að gæta ekki hlutdrægni þegar þeir kanna nærmynd umsækjenda á Internetinu. Þar að auki þurfa rafræn umsóknarkerfi að vera notendavæn og einföld í notkun. Að lokum eru helstu annmarkar rannsóknar ræddir og fjallað um mögulegar framtíðarrannsóknir.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2015-01-09T14:09:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2015-01-09T14:09:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2015-01-09</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2015-01-09T13:02:13Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-02</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/20318</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Mannauðsstjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vefsíður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Netið</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Starfsráðningar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Rafrænar ráðningar: Notkun rafænna ráðninga á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>