<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T08:29:00Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/20900" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/20900</identifier><datestamp>2018-10-15T11:23:18Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Kristjana Fenger 1989-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Brynhildur G. Flóvenz 1954-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">Titill á kápu prentaðs eintaks: Árangursrík vernd. Skýring á flóttamannahugtaki Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna í samræmi við stöðu kvenna á flótta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ritgerðin fjallar um flóttamannahugtak Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna og hvernig það fellur að félagslegum raunveruleika kvenna á flótta. Rannsakað er hvort kyn skiptir máli við málsmeðferð og niðurstöðu hælisveitinga og þau áhrif sem kyn, bæði líffræðilegt og félagslegt, getur haft á réttarstöðu kvennanna. Kvennaréttarlegu og feminísku sjónarhorni er beitt á viðfangsefnið og farið er í hvernig kynbundin áhætta, mismunun og ofbeldi geta náð marki ofsókna, sem taka oft á tíðum á sig aðra birtingarmynd en ofsóknir karla. &#xd;
Mikilvæg atriði á borð við ofsóknir, ástæðuríkan ótta og ákvörðunarástæður þær sem hugtakið gerir kröfu um að ofsóknir séu byggðar á verða skoðuð í ljósi kynferðis, þ.e. hvort að hugtakið sé í framkvæmd í samræmi við raunveruleika kvenna og sé túlkað og skýrt með tilliti til þeirra ólíku aðstæðna og upplifana sem kynin standa frammi fyrir, auk þess sem nokkrar tegundir kynbundinna ofsókna eru skýrðar nánar.&#xd;
Íslensk löggjöf um málefni hælisleitenda eru skoðuð og þá aðallega lög um útlendinga nr. 96/2002 með síðari breytingum, auk þess sem framkvæmd laganna er skoðuð með því að fara yfir nokkur mál útlendingayfirvalda þar sem ákvarðanir voru teknar í málefnum flóttakvenna á stjórnsýslustigi. Athugun er gerð á því hvaða sjónarmið ráða þar för og hvernig rökstuðningi yfirvalda er háttað. Þá eru alþjóðlegir samningar á sviði flóttamannaréttar og kynjajafnréttis skoðaðir, tilskipanir Evrópusambandsins auk norskrar löggjafar og framkvæmdar vegna líkinda íslenskra og norskra laga. &#xd;
Í framhaldinu er farið í hvernig sé hægt að veita konum sem hingað til lands koma árangursríka vernd hér á landi í þeim tilvikum þar sem þær falla ekki jafn greiðlega að flóttamannahugtakinu í alþjóðlegri löggjöf sem og innlendri með því að kafa nánar í einstaka málsmeðferðar- og leiðbeiningarreglur.  Raktar eru þær breytingar sem gerðar hafa verið á útlendingalöggjöf í jafnréttisátt á undanförnum árum og tillögur eru settar fram um hvernig vernd flóttakvenna gæti verið háttað í framhaldinu, í samræmi við nágrannaríki okkar og alþjóðlega stefnumótun og framkvæmd á sviðinu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2015-05-04T09:03:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2015-05-04T09:03:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2015-05-04</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2015-05-03T23:45:25Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/20900</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Flóttamenn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Réttarstaða</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Konur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynbundið ofbeldi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Femínismi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Árangursrík vernd vegna kynbundinna ofsókna. Skýring á flóttamannahugtaki Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna í samræmi við stöðu kvenna á flótta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>