<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T05:57:54Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/21619" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/21619</identifier><datestamp>2018-10-15T13:04:19Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2075</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Una Kristín Guðmundsdóttir 1990-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ásdís Björk Guðmundsdóttir 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Helga Gottfreðsdóttir 1960-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Að fæða barn er einn stærsti lífsviðburður sem hver kona upplifir á ævi sinni og minning sem aldrei gleymist. Fæðingin hefur mikil áhrif á líkamlega og andlega heilsu konunnar og hvernig hún lítur á sjálfa sig. Margt getur haft áhrif á ánægju með fæðinguna, eins og að fá væntingum sínum fullnægt en væntingar móta reynslu og álit kvenna á fæðingunni. Væntingar kvenna til fæðinga eru mismunandi og margt sem hefur áhrif á þær. Tilgangur verkefnisins var að finna út hvaða væntingar konur hafa til fæðingar ásamt því að skoða hversu mikilvægar væntingar kvenna eru og hve mikil áhrif þær hafa á fæðingarreynsluna.&#xd;
Rannsóknin var eigindleg og stuðst var við rýnihópaaðferð þar sem tekin voru hálfstöðluð viðtöl við 11 konur í þremur hópum. Þátttakendum var safnað með svokölluðu snjóboltaúrtaki þar sem rannsóknin var auglýst á lokuðum spjallþráðum á netinu fyrir barnshafandi konur. Þær sem höfðu áhuga á að taka þátt í rannsókninni sendu okkur tölvupóst og fengu þær þá sent kynningarbréf um rannsóknina. Konurnar voru á aldrinum 23-36 ára og voru gengnar 16-32 vikur. Níu konur gengu með sitt fyrsta barn en tvær höfðu átt börn áður.&#xd;
Niðurstöðurnar voru að konur vilja hafa stjórn og vera þátttakendur í fæðingunni. Einnig bera þær mikið traust til maka og ljósmóður. Flestar voru sammála um að fara inn í fæðinguna með opnum hug og taka því sem kæmi. Þessar niðurstöður eru í samræmi við aðrar rannsóknir sem hafa verið gerðar um væntingar kvenna til fæðingar.&#xd;
Mikilvægt er fyrir ljósmæður sem annast konur í fæðingu að stuðla að því að væntingar kvenna séu uppfylltar eins og kostur er svo fæðingarreynslan verði góð og konur sáttar við þessa lífsreynslu. &#xd;
Lykilhugtök: barneignir, væntingar, stuðningur, ljósmóðir, ánægja og sjálfsöryggi.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2015-05-26T10:53:14Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2015-05-26T10:53:14Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2015-05-26</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2015-05-25T13:03:02Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/21619</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hjúkrunarfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fæðing</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Væntingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Væntingar barnshafandi kvenna til fæðingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>