<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T22:13:41Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/22069" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/22069</identifier><datestamp>2025-09-11T14:02:11Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Harpa Birgisdóttir 1993-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Elsa Albertsdóttir 1975-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þorvaldur Kristjánsson 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Það er töluverð umræða á meðal hestamanna og áhugafólks um ræktun íslenska hestsins að bæta þurfi mat á vilja og geðslagi. Margir telja að hross sem sýni spennuvilja og æsing hljóti oft háar einkunnir á kostnað þjálla hrossa sem leitast við að gera knapa sínum til hæfis. Á fundi Fagráðs í hrossarækt í lok árs 2013 var samþykkt að sumarið 2014 yrði hrossum á kynbótasýningum gefin sérstök einkunn fyrir þjálni (þjálnimat). Verkefnið fól í sér samantekt þjálnigagna. Markmiðið var að skilgreina eiginleikann þjálni og leggja mat á erfðastuðla eiginleikans og tengsl hans við aðra kynbótaeiginleika. Gögnin samanstóðu af kynbótadómum og þjálnimati. Samtals voru notaðir 1162 dómar á 1001 kynbótahrossi. Lýsandi tölfræði þjálnieiginleikanna var reiknuð og erfðastuðlar voru metnir fyrir þjálnieiginleikana og valda kynbótaeiginleika. Þjálnimatið var framkvæmt af kynbótadómurum samhliða hefðbundnum kynbótadómsstörfum við forskoðun hrossa á Íslandi. Matið fór þannig fram að dómarar gáfu hverjum hesti einkunn á línulegum skala frá 1 til 7 fyrir 5 eiginleika sem lúta að þjálni hestsins. Eiginleikarnir voru höfuðburður, taumsamband, yfirlína, samstarf og taugastyrkur. Einnig var hverjum hesti gefin heildareinkunn fyrir þjálni á þessum sama skala. Niðurstöðurnar gefa til kynna að þjálnimatið hafi tekist vel. Einkunnir innan eiginleika voru nálægt því að vera normaldreifðar. Meðaltalseinkunnir fyrir þjálnieiginleikana voru á bilinu 4,27-5,03, lægst fyrir yfirlínu og hæst fyrir taugastyrk. Mat arfgengis þjálnieiginleikanna var á bilinu 0,05-0,34, þar sem lægsta gildið var fyrir taugastyrk og það hæsta fyrir yfirlínu. Metin erfðafylgni innan þjálnieiginleikanna var mjög há sem og svipfarsfylgnin. Erfðafylgni þjálnieiginleikanna við valda hæfileikaeiginleika var jákvæð í öllum tilvikum nema við skeið. Erfðafylgni þjálnieiginleikanna við valda sköpulagseiginleika var heldur lægri.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2015-06-16T11:44:49Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2015-06-16T11:44:49Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2015-06-16</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/22069</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslensk kynbótahross</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vilji og geðslag</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þjálni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Erfðastuðlar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Mat á þjálni íslenskra kynbótahrossa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>