<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T23:57:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/22072" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/22072</identifier><datestamp>2025-09-11T14:05:21Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sigríður Birna Björnsdóttir 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jóhannes Sveinbjörnsson 1970-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Emma Eyþórsdóttir 1953-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Hestamennska er íþrótt sem gengur út á samspil hests og manns. Samspilið getur verið flókið ef tryggja á að öllum þörfum hests sé mætt og nauðsynlegt er að aldrei verði stöðnun í þróun betri lífsgæða hestsins. Fóðrun er eitt það mikilvægasta í hestahaldi og vandmeðfarin. Viðfangsefni ritgerðarinnar er fóðrun hesta á húsi yfir vetrartímann og höfundur ákvað að nálgast viðfangsefnið með því að gera rannsókn á viðfangsefninu. Spurningalisti var lagður fyrir hestamenn í fjórum hesthúsahverfum á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu febrúar til mars 2015. Rannsakandi heimsótti 72 hesthús og náði úrtakið til 527 hesta. &#xd;
Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort hestamenn byggja fóðrun hrossa á einhverjum efnagreiningum við fóðrun á húsi yfir vetrartímann. Tilgangur rannsóknarinnar var jafnframt að kanna hvort fóðrunin sé í samræmi við brúkun og þjálfun hrossanna og hvort hestamenn hafi orðið varir við sjúkdóma sem geta stafað af fóðrun.&#xd;
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að almennt er fóðrun hesta ekki byggð á heyefnagreiningu. Aðeins 5,6% af úrtakinu hafði látið efnagreina heyið. Mikill áhugi var fyrir að nýta efnagreiningar við fóðrun (87,7%) ef hún væri til staðar. Þátttakendur sem vigtuðu gróffóðrið ofan í hesta sína voru 47,2% og bjóst rannsakandi ekki við þessari niðurstöðu, sem sýnir að fræðsla er mikilvæg fyrir hestamenn. Þekking þátttakenda á lýsi og notkun saltsteina var lítil, sem bendir til nauðsynjar á fræðslu til hestamanna um mikilvægi þeirra þegar kemur að fóðrun. Hestar í þjálfun þurfa að hafa gott aðgengi að saltsteini til að viðhalda saltþörf líkamans en því virðist vera veruleg ábótavant. Á síðustu áratugum hefur tíðni sjúkdóma farið minnkandi. Aðeins tvö tilfelli af múkki kom upp í þessari rannsókn og fjögur tilfelli af hrossasótt. Álykta má út frá niðurstöðunum að þekking hestamanna á fóðrun og fóðurþörfum sé ábótavant á mörgum stöðum. Kynna þarf heyefnagreiningu betur fyrir hestamönnum, annars er hætta á vanfóðrun eða offóðrun.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2015-06-16T11:54:48Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2015-06-16T11:54:48Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2015-06-16</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/22072</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fóðrun dýra</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fóðurþarfir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þekking</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslenski hesturinn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Fóðrun hesta á húsi yfir vetrartímann</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>