<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T21:38:14Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/22101" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/22101</identifier><datestamp>2018-10-15T13:02:30Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2075</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hannes Halldórsson 1992-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Tómas Guðbjartsson 1965-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Magnús Karl Magnússon 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Inngangur: Lungnakrabbamein er annað algengasta krabbameinið hjá báðum kynjum á Íslandi og greinast 160 einstaklingar árlega. Þriðjungur þeirra gengst undir skurðaðgerð á lunga og læknast helmingur af þeim hópi. Á síðustu árum hafa orðið framfarir í greiningu og meðferð lungnakrabbameins en áhrif þeirra á lifun þessa sjúklingahóps eru ekki þekkt. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða árangur skurðaðgerða við lungnakrabbameini hjá heilli þjóð á 24 ára tímabili með sérstaka áherslu á lifun.&#xd;
&#xd;
Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn sem tók til allra sjúklinga sem gengust undir skurðaðgerð við lungnakrabbameini á Íslandi frá 1991 til 2014. Upplýsingar fengust úr sjúkraskrám og æxlin voru stiguð samkvæmt 7. útgáfu TNM-stigunarkerfisins. Lífshorfur voru reiknaðar með aðferð Kaplan-Meier og fjölbreytugreining Cox var notuð til að ákvarða forspárþætti lifunar og hvort lifun hefði breyst á fjögurra ára tímabilum. Útreikningar á lifun miðuðust við 31. desember 2014 og var meðal eftirfylgni 31 mánuður.&#xd;
&#xd;
Niðurstöður: Alls voru gerðar 693 aðgerðir á 655 einstaklingum, þar af voru 523 blaðnám (76%), 84 lungnabrottnám (12%) og 86 fleyg- eða geiraskurðir (12%). Kirtilfrumukrabbamein (59%) og flöguþekjukrabbamein (28%) voru algengustu krabbameinin yfir tímabilið. Meðalaldur hækkaði úr 63 árum 1991-1994 í 66 ár 2011-2014 (p=0,017) og hlutfall karla (48%) breyttist marktækt yfir tímabilið. Hlutfall sjúklinga á stigi I og II jókst úr 74% í 87% frá fyrsta til síðasta tímabils (p=0,01). Tilviljanagreiningar (33%) breyttust ekki marktækt yfir tímabilið (p=0,80). Bæði eins árs og þriggja ára lifun jukust marktækt yfir tímabilið (p=0,002), eins árs lifun úr 69% 1991-1994 í 92% 2011-2014 og þriggja ára lifun úr 44% 1991-1994 í 73% 2011-2014. Sjálfstæðir forspárþættir verri lifunar voru hækkandi stigun (ÁH=1,39), aldur (ÁH=1,03) og saga um kransæðasjúkdóm (ÁH=1,25). Aðgerð á síðari hluta tímabilsins (2003-2014) var hins vegar verndandi hvað lifun varðar og ávinningurinn mestur á tímabilinu 2011-2014 (ÁH=0,48, 95% ÖB: 0,30-0,76; p=0,0016), jafnvel þótt leiðrétt væri fyrir aldri og stigun.&#xd;
&#xd;
Ályktanir: Horfur sjúklinga sem gangast undir skurðaðgerð vegna lungnakrabbameins hafa batnað á síðustu árum hér á landi. Ekki sést hærra hlutfall tilviljanagreininga eða sjúklinga með staðbundinn sjúkdóm (stig I og II) sem gæti skýrt þessa þróun. Sennilegt er að bætt stigun með aukinni notkun miðmætis- og berkjuómspeglunar og jáeindaskanna velji betur sjúklinga til skurðmeðferðar sem skýrir bættan árangur en viðbótarmeðferð með krabbameinslyfjum eftir aðgerð gæti einnig haft þýðingu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2015-06-19T10:07:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2015-06-19T10:07:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2015-06-19</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2015-06-19T08:23:41Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/22101</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Læknisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lungnakrabbamein</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Krabbameinslækningar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skurðlækningar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Rannsóknir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Horfur sjúklinga sem gangast undir skurðaðgerð vegna lungnakrabbameins á Íslandi hafa batnað</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>