<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-01T18:15:23Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/22268" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/22268</identifier><datestamp>2021-11-15T08:50:50Z</datestamp><setSpec>com_1946_6867</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_6869</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir 1990-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Heimir Örn Herbertsson 1970-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Tilgangur ritgerðarinnar er að rannsaka lárétta samstarfssamninga í samkeppnisrétti og hvar mörkin liggja á milli lögmætra og ólögmætra upplýsingaskiptasamninga, rannsóknar- og þróunarsamninga, framleiðslusamninga, innkaupasamninga, samninga um markaðsstarf og vörustöðlunarsamninga. &#xd;
Ritgerðin hefst á inngangskafla þar sem rannsóknarefnið er kynnt. Því næst er fjallað um uppruna og sögulega þróun samkeppnisreglna. Í þriðja kafla er gerð grein fyrir 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 sem kveður á um bann við samráði. Í fjórða kafla er farið yfir undanþágureglur frá 10. gr. samkeppnislaga. Í fimmta kafla er fjallað um þau einkenni markaðarins sem hafa þýðingu við mat á láréttum samstarfssamningum. Í sjötta kafla er síðan fjallað um samstarf á milli keppinauta sem ekki hefur það að markmiði að raska eða hamla samkeppni. Í sjöunda kafla er ítarlega farið yfir hverja og eina tegund láréttra samstarfssamninga þar sem leitast er við að varpa skýru ljósi á neikvæð og jákvæð áhrif samninganna og framkvæmd þeirra. Í áttunda kafla er annar valkostur kynntur sem fyrirtæki geta nýtt sér til þess að vinna saman. Um er að ræða sameiginlegt verkefni sem gegnir til framtíðar allri starfsemi sjálfstæðrar efnahagseiningar. Í níunda kafla er farið yfir helstu viðurlög samkeppnislaga og sjónum beint að mögulegri refsiábyrgð einstaklinga við gerð láréttra samstarfssamninga og hlutdeild í slíkum brotum. Að lokum eru helstu niðurstöður teknar saman.&#xd;
Við rannsóknina var helst stuðst við sett lög, fræðiskrif, bæði innlend og frá Evrópu, leiðbeinandi reglur framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, ákvarðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Samkeppniseftirlitsins ásamt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins. Rannsóknin leiddi í ljós að ekki er hægt að draga skýr mörk á milli láréttra samstarfssamninga sem teljast lögmætir og hinna sem eru ólögmætir þar sem mat á áhrifum ræðst af samspili efnis samninganna, einkenna viðkomandi markaðar og efnahagslegs styrks fyrirtækjanna sem að samstarfinu standa.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2015-06-26T13:42:17Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2015-06-26T13:42:17Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2015-06-26</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2015-05-13T12:50:38Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/22268</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Samkeppnisréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Samningar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Láréttir samstarfssamningar í samkeppnisrétti</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>