<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T08:19:49Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/2230" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/2230</identifier><datestamp>2018-10-15T13:40:56Z</datestamp><setSpec>com_1946_2062</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2092</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Elísabet Ósk Ágústsdóttir 1981-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gunnþórunn Guðmundsdóttir 1968-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Á undanförnum áratugum hefur skapast blómleg fræðiumræða um sjálfsævisögur og margbreytilegar birtingarmyndir sjálfsins í slíkum frásögnum. Hér á eftir verður sögulegur bakgrunnur bókmenntaformsins rakinn í stuttu mál og ljósi varpað á ólíkar nálganir fræðimanna á forsendum þriggja megineinkenna formsins; ævinnar, sjálfsins og sögunnar.&#xd;
Meginviðfangsefni ritgerðarinnar er hins vegar að varpa ljósi á kenningu Betty Bergland um tímarými í sjálfsævisögum og kanna að hvaða leyti greining á þeim forsendum birtir ólíkar hliðar sjálfsins í texta. Bergland byggir kenningu sína á hugtaki Mikhails Bakhtín um „chronotope“ – tengsl tíma og rýmis – en hún telur að þar sé að finna skapandi leið til að lesa sjálfsævisögur. Tímarými í sjálfsævisögum sé að finna í notkun á orðinu „ég“ og „hér og nú“ eða „þar og þá“. Með því að skoða hvernig sögumaður staðsetur sig í tíma og rými telur Bergland að skapast geti tækifæri til að meta, endurskoða og gagnrýna menninguna og ríkjandi hugmyndafræði sem síðar geti leitt til samfélagslegra breytinga. Þessi margradda og margbrotni lestur fellur einkar vel að póstmódernískum skrifum og kemur í veg fyrir að&#xd;
sjálfsævisögur séu metnar á grundvelli staðlaðra hugmynda um kyn, þjóðerni eða samfélagslega stöðu höfundar. Þess í stað fær hver einstök frásögn og sjálfið sem hún birtir að njóta sín á sínum eigin forsendum.&#xd;
Fjallað verður um tvær tilraunakenndar sjálfsævisögur, The Woman Warrior: Memoirs of a Girlhood Among Ghosts (1975) eftir Maxine Hong Kingston og Skating to Antarctica (1997) eftir Jenny Diski. Segja má að þessar frásagnir einkennist af margræðni þar sem hugmyndir um eðlislægt, einsleitt og heilsteypt sjálf eru brotnar upp og þess í stað er athyglinni fyrst og fremst beint að möguleikum á framsetningu á sjálfi í frásögn. Kingston og Diski vinna á skapandi hátt úr fortíð sinni og draga upp margræða mósaíkmynd af sjálfi sem er breytingum háð og stöðugt í mótun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2009-04-20T14:25:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2009-04-20T14:25:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2009-01-20T14:25:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/2230</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Almenn bókmenntafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjálfsævisögur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Bókmenntagreining</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ævisagnaritun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kingston, Maxine Hong, 1940-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Woman warrior (sjálfsævisaga)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Diski, Jenny, 1947-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skating to Antartica (sjálfsævisaga)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Ég um mig frá mér til mín. Umfjöllun um birtingarmyndir sjálfsins í sjálfsævisögum Maxine Hong Kingston og Jenny Diski</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>