<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-04T05:03:31Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/22309" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/22309</identifier><datestamp>2018-10-12T11:14:44Z</datestamp><setSpec>com_1946_6867</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_6868</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Jóhanna Lárusdóttir 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hallgrímur Ásgeirsson 1962-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markaðsmisnotkun í ljósi dómaframkvæmdar á Íslandi &#xd;
&#xd;
Mikilvægt er að íslensk löggjöf um verðbréfaviðskipti stuðli að því að verðbréfaviðskipti fari fram þannig að utanaðkomandi aðilar geti treyst því að heiðarlega sé komið fram. Í 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 (vvl.) er að finna ákvæði sem kveður á um bann við markaðsmisnotkun og er því ætlað að tryggja að aðilar geti ekki haft óeðlileg áhrif á verðmyndun fjármálagerninga. Ekki hefur mikið reynt á ákvæði 117. gr. vvl. fyrir íslenskum dómstólum en ákvæði um markaðsmisnotkun hefur verið í lögum í tæp 20 ár, eða frá 1996. Í kjölfar bankahrunsins í október 2008 hafa átt sér stað miklar umræður á opinberum vettvangi um það hvort markaðsmisnotkun hafi átt sér stað í auknum mæli í aðdraganda hrunsins.  &#xd;
&#xd;
&#xd;
Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þá háttsemi sem tengist dómaframkvæmd á sviði markaðmisnotkunar en eftirfarandi dómsmál eru til umfjöllunar: mál nr. S-1635/2003, Hrd. 52/2010, mál nr. S-207/2013 og Hrd. 145/2014 &#xd;
&#xd;
&#xd;
Í upphafi ritgerðarinnar er fjallað um þau lög og reglur sem gilda um markaðsmisnotkun og lögskýringargögn sem lögð eru til grundvallar við mat á henni. Þá er leitast við að kanna hvaða aðferðir og háttsemi teljist til markaðsmisnotkunar í ljósi dómaframkvæmdar og hvernig dómstólar á Íslandi hafa túlkað ákvæði um markaðsmisnotkun. Þannig er lagt heildstætt mat á þá háttsemi sem vörðuðu dómana og einnig leitast við að taka afstöðu til niðurstöðu ofangreindra dómsmála. Að lokum er gerður stuttur samanburður við ákvæði um markaðsmisnotkun í dönskum lögum. Ákvæði 117. gr. vvl. er fremur óskýrt og er því erfitt að átta sig á því hvaða háttsemi getur fallið undir það. Af dómaframkvæmdinni má álykta að ákvæðið sé túlkað fremur rúmt enda getur verknaðarlýsing þess náð yfir margar aðferðir markaðsmisnotkunar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2015-06-30T15:36:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2015-06-30T15:36:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2015-06-30</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2015-05-15T12:37:23Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/22309</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Verðbréfaviðskipti</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Dómar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Markaðsmisnotkun í ljósi dómaframkvæmdar á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>