<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T18:46:06Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/23044" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/23044</identifier><datestamp>2018-10-15T15:17:03Z</datestamp><setSpec>com_1946_130</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_289</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ragna Baldvinsdóttir 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Janus Friðrik Guðlaugsson 1955-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Inngangur: Á síðustu árum hefur þjóðin verið að eldast og eldri einstaklingum farið fjölgandi. Með heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi má bæta lífsgæði á efri árum. Að stunda reglulega hreyfingu gefur eldri einstaklingum möguleika á að lifa lengur sjálfstæðara lífi, auðveldar athafnir daglegs lífs og kemur í veg fyrir ótímabæra stofnvist. &#xd;
Markmið: Tilgangurinn með þessari rannsókn var að framkvæma eftirfylgnirannsókn á rannsókn sem hófst árið 2008 og bar vinnuheitið Við eldumst öll. Markmið þessarar rannsóknar var jafnframt að bera niðurstöður mælinga saman við fyrri mælingar, sér í lagi eftir að sex mánaða þjálfun lauk og eftir sex mánaða eftirfylgnimælingar í lok árs 2009. Brottfall þátttakanda var skoðað og rýnt í niðurstöður þeirra sem komu í 5 ára eftirfylgnimælingar. &#xd;
Aðferð: Rannsóknin var fimm ára eftirfylgnirannsókn sem náði til nokkurra heilsufarsbreyta, þar á meðal mælingar á hreyfifærni, liðleika, styrk, þoli, holdafari, daglegri hreyfingu og heilsutengdum lífsgæðum.&#xd;
Niðurstöður: Af þeim 117 einstaklingum sem hófu þátttöku í rannsókninni 2008 tóku 48 einstaklingar þátt í mælingum nú. Af þeim 69 sem ekki mættu í mælingar eru 14 látnir. Hópurinn sem mætti til mælinga hafði tapað styrk í fótum (p&lt;0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni og einnig tapað gripstyrk (p&lt;0.001) út frá öllum fyrri mælingum. Blóðþrýstingur var lægri (p&lt;0.001) samanborið við allar fyrri mælingar en hjartsláttur í hvíld hækkaði (p&lt;0.001) samanborið við allar fyrri mælingar. Mittisummál lækkaði (p=0.01) frá upphafsmælingu og hreyfigeta versnaði hvað varðar heildar stigafjölda í SPPB-hreyfifærniprófi (p&lt;0.001) og undirþáttum: standa upp úr stól (p&lt;0.001), jafnvægi (p=0.01) og fjögurra metra gönguprófi (p&lt;0.001). Hreyfijafnvægi var verra (p&lt;0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni, árangur í sex mínútna gönguprófi versnaði (p&lt;0.001) miðað við allar fyrri mælingar og dagleg hreyfing minnkaði (p&lt;0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni.&#xd;
Umræða og ályktun: Hreyfigeta versnar með aldri ef einstaklingar stunda ekki reglulega skipulagða þjálfun. Niðurstöður sýna hve mikilvægt það er að sinna þessum aldurshópi vel, finna leiðir til að koma í veg fyrir hreyfiskerðingu eldri aldurshópa og væntanlega draga úr ótímabærri stofnanavist.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2015-09-28T11:16:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2015-09-28T11:16:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2015-09-28</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2015-05-27T11:58:38Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/23044</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íþrótta- og heilsufræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aldraðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heilsufar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lífsgæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heilsuefling</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Megindlegar rannsóknir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Fjölþætt heilsurækt fyrir  eldri einstaklinga : fimm ára eftirfylgnirannsókn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Multimodal Training Intervention for Older Individuals :  A Five Years Follow-up</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>