<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T20:05:31Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/23145" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/23145</identifier><datestamp>2025-10-23T15:30:51Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4483</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Myrra Ösp Gísladóttir 1986-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigríður Kristjánsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hjalti Steinþórsson 1943-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Viðfangsefni verkefnisins var notkun gátlista við gerð aðalskipulags á Íslandi. Gátlistinn sem varð fyrir valinu var fenginn úr bókinni Urban Land Use Planning en höfundar hennar eru Berke, P., Godschalk, D., Kaiser, E. &amp; Rodriguez, D., og er hún frá árinu 2006. Gátlistinn gengur út á það að meta gæði skipulagsáætlana hvað varðar kröfur um innihald þeirra, notagildi og fleira. En áður en gátlistanum var beitt á aðalskipulagsáætlanirnar var hann heimfærður fyrir íslenskar aðstæður, þ.e. örlitlar breytingar voru gerðar á spurningum og bætt var við spurningum sem byggja á íslenskum skipulagslögum og fleira. Auk gátlistans var farið yfir aðalskipulagsáætlanir, þróun aðalskipulags út frá lagabreytingum og nýjum áherslum, skipulagskerfið á Íslandi og sveitarstjórnarstigið.&#xd;
Markmiðið með verkefninu var að varpa ljósi á styrkleika og veikleika íslenskrar aðalskipulagsgerðar með því að nota gátlista við yfirferð 13 aðalskipulagsáætlana og komast að því hvert notagildi slíks gátlista er í íslensku skipulagskerfi. Auk þess sem þróun aðalskipulags var skoðuð út frá lagalegu samhengi.&#xd;
Við gerð aðalskipulags þarf að huga að mörgum þáttum og því getur verið auðvelt að týna þræðinum, yfirsjást eitthvað, eða gleyma einhverju í ferlinu. Skipulagsstofnun lét vinna árið 2003 ítarlegt leiðbeiningarit, sem ætti að vera gott hjálpartæki við þá vinnu er aðalskipulagsgerð felur í sér, en síðan eru liðin 12 ár og því margt, sem þarf að uppfæra, sér í lagi það, sem tengist löggjöfinni beint og breyttist við tilkomu nýrra skipulagslaga nr. 123/2010.&#xd;
Niðurstöður verkefnisins sýndu að notkun gátlistans hefur þann möguleika, að auka gæði aðalskipulagsáætlana, hann sýndi fram á hverjir styrkleikar og veikleikar íslenskra aðalskipulagsáætlana eru út frá kröfum gátlistans, auk þess að í ljós kom að hann á vel við íslenskar aðstæður. Niðurstöður sýndu það einnig, að þær breytingar sem hafa átt sér stað í íslenskum skipulagslögum hafa haft jákvæð áhrif á gæði aðalskipulagsáætlana, út frá kröfum gátlistans. Gátlistann er bæði hægt að hafa til hliðsjónar á meðan á aðalskipulagsvinnunni stendur og einnig í lokin til að yfirfara það sem er komið og fá á hreint hvort það er eitthvað sem þurfi að bæta.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2015-10-29T15:40:13Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2015-10-29T15:40:13Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2015-10-29</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-10</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/23145</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aðalskipulag</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skipulagsmál</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gátlistar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ferli</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aðferðafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skipulagslög</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Mat á gæðum aðalskipulagsáætlana. Notagildi gátlista við aðalskipulagsgerð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>