<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-01T18:01:33Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/23739" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/23739</identifier><datestamp>2018-10-15T09:55:00Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Kristófer Kristófersson 1990-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Eðvald Möller 1957-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Með aukinni meðvitund um þau áhrif sem fyrirtæki hafa á umhverfi sitt ásamt hertari löggjöf og breyttu viðhorfi almennings til umhverfismála, hafa fyrirtæki í auknum mæli endurskoðað starfsemi sína og breytt henni í þágu umhverfissjónarmiða. ISO (Alþjóðlega staðlaráðið) 14001 staðalinn á rætur sínar að rekja til breyttrar heimssýnar í umhverfismálum og gerir innleiðing hans fyrirtækjum kleift að að byggja upp og reka umhverfisstjórnunarkerfi til að ná fram betri árangri í umhverfismálum sínum. Staðallinn er gefinn út af ISO en sjálfstæðir aðilar sjá um vottun.&#xd;
Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að fyrirtæki fara frekar út í innleiðingu á staðlinum til þess að vera leiðandi í umhverfismálum en til þess að ná fjárhagslegum ávinningi. Jafnframt sýna niðurstöður kannana að þátttaka og stuðningur innri og ytri hagsmunaaðila skipti höfuðmáli við innleiðingarferlið. Ýmsir hjallar virðast þó vera á veginum og hafa mörg fyrirtæki sem hefja innleiðingu ekki lokið við að öðlast formlega vottun.&#xd;
Eigindleg könnun á innleiðingu ISO 14001 hjá fyrirtækinu Netpörtum ehf. leiddi í ljós að þar er almenn ánægja með staðalinn og innleiðing hans hefur stuðlað að aukinni skilvirkni í rekstri. Þá telja stjórnendur að hann geti hjálpað fyrirtækinu að vera leiðandi á sviði umhverfismála á þeim vettvangi sem fyrirtækið starfar. Í ljós kom að helstu ókostir sem fylgdu innleiðingunni voru að það er fremur dýrt að öðlast vottun auk þess sem það tekur talsverðan tíma stjórnenda og krefst mikillar skjölunar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2016-02-11T08:21:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2016-02-11T08:21:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2016-02-11</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2016-02-10T18:23:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2016-02</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/23739</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Umhverfismál</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fyrirtæki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Staðlar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Innleiðing ISO 14001 hjá Netpörtum ehf. Lærdómur, kostir og gallar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>