<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T22:13:11Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/24046" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/24046</identifier><datestamp>2018-10-15T13:12:40Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_4564</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sonja Rut Rögnvaldsdóttir 1987-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Díana Óskarsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Inngangur: Hjáveituaðgerðum á maga og smáþörmum hefur fjölgað mikið á síðustu árum enda áhrifarík leið til meðferðar á offitu. Ýmsir fylgikvillar geta þó komið fram í kjölfar aðgerðarinnar og hafa blikur verið á lofti varðandi áhrif hennar á beinabúskap. Erlendar rannsóknir benda margar til þess að beinþéttni fari lækkandi í kjölfar hjáveituaðgerða sem mögulega getur aukið líkur á beinþynningu síðar meir.&#xd;
&#xd;
Markmið: Að kanna áhrif verulegs þyngdartaps á beinþéttni íslenskra karla og kvenna í lærleggshálsi, nærenda lærleggs og lendhrygg í kjölfar hjáveituaðgerðar á maga og smáþörmum.&#xd;
&#xd;
Efni og aðferðir: Unnið var úr gögnum sem þegar lágu fyrir en það voru þyngdar-,hæðar-og beinþéttnimælingar 70 einstaklinga af báðum kynjum á aldrinum 18-65 ára. Mælingar voru gerðar bæði fyrir aðgerð og tólf mánuðum eftir aðgerð. Meðaltal og staðalfrávik fyrir allar breytur var fundið og breytingar á breytugildum á milli mælinga reiknaðar út, bæði fyrir allan hópinn og hvort kyn fyrir sig. Parað t-próf var notað til að kanna hvort breytingarnar væru marktækar. Bornar voru saman beinþéttnibreytingar í lærleggshálsi, nærenda lærleggs og lendhrygg á milli kynja með ópöruðu t-prófi. Línuleg aðhvarfsgreining var framkvæmd til að kanna hvort samband væri á milli þyngdartaps hópsins og breytinga á beinþéttni. Við úrvinnslu á niðurstöðum var notast við forritin Microsoft Excel og R. &#xd;
&#xd;
Niðurstöður: Marktæk lækkun varð á BMD á öllum þremur mælisvæðum heildarhópsins sem og kvennahópsins (p˂0,05). Í karlahópi varð marktæk lækkun á BMD í lendhrygg og nærenda lærleggs en BMD breytingar í lærleggshálsi voru ómarktækar (p=0,07). Konur misstu að meðaltali hærra hlutfall BMD en karlar og var munurinn marktækur í lærleggshálsi (p˂0,05) og nærenda lærleggs (p˂0,05) en ekki í lendhrygg (p=0,80). Áhrif þyngdartaps á BMD tap voru ómarktæk í lærleggshálsi (p=0,09) og lendhrygg (p=0,47) en áhrif á BMD tap í nærenda lærleggs reyndust marktæk (˂0,001).&#xd;
&#xd;
Ályktanir: Beinþéttni einstaklinga sem gangast undir hjáveituaðgerð fer minnkandi fyrsta árið eftir aðgerð og á meira beintap sér stað á meðal kvenna en karla. Magn þyngdartaps virðist ekki vera sterkur áhrifaþáttur á það hversu mikið beintapið verður. Mikilvægt er að fylgst sé með beinheilsu einstaklinga í kjölfar hjáveituaðgerðar með reglulegum beinþéttnimælingum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2016-04-29T11:26:29Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2016-04-29T11:26:29Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2016-04-29</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2016-04-29T11:23:31Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2016-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/24046</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Geislafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hjáveituaðgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fylgikvillar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Beinþéttni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif magahjáveituaðgerðar á beinabúskap í lærleggshálsi, nærenda lærleggs og lendhrygg. 12 mánaða eftirfylgni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Undergraduate diploma</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>