<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T09:31:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/24076" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/24076</identifier><datestamp>2018-10-15T13:12:40Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_4564</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hafrún Sigurðardóttir 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jónína Guðjónsdóttir 1972-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hallgrímur Axel Tulinius 1972-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Inngangur:   Heilbrigðisstofnun Austurlands nær yfir starfsstöðvar víða um fjórðunginn og á nokkrum þeirra eru gerðar röntgenrannsóknir. Geislafræðingar eru ekki alltaf til staðar í minni bæjarfélögum og því eru aðrir heilbrigðisstarfsmenn að framkvæma rannsóknirnar. Í þessu verkefni voru röntgenrannsóknir á þremur starfsstöðvum skoðaðar og reiknað út hlutfall af úrkasti mynda og ófullkomnum röntgenrannsóknum. Rannsóknir hafa sýnt hlutfall úrkasts allt að 11% í stafrænum myndgreiningarbúnaði, það þykir of hátt miðað við hvað tæknin er orðin góð. &#xd;
Markmið:   Markmið rannsóknarinnar var að meta gæði rannsókna á starfsstöðvum Heilbrigðisstofnunar Austurlands með því að mæla hlutfall úrkasts og ófullkominna röntgenrannsókna á hverjum stað fyrir sig. Jafnframt var skoðað hvort munur sé á gæðum eftir því hvort geislafræðingar eða aðrir heilbrigðisstarfsmenn framkvæmdu rannsóknirnar.&#xd;
Efni og aðferðir:   Gögnum var safnað saman frá starfsstöðvum í Neskaupstað, á Egilsstöðum og Vopnafirði. Um það bil 100 rannsóknir voru skoðaðar á hverjum stað sem framkvæmdar voru fyrri hluta árs 2015. Á Egilsstöðum voru bæði geislafræðingar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn að taka röntgenmyndir og gögn voru skráð niður í sitt hvoru lagi. Í Neskaupstað var alltaf geislafræðingur til staðar en á Vopnafirði aldrei. Beitt var fjórum aðferðum til að vinna úr gögnunum. Í fyrsta lagi var kannað hversu margar rannsóknir voru skráðar ófullkomnar samkvæmt röntgenlækni. Í öðru lagi voru gæði allra rannsókna endurmetin með því að kanna meðal annars innstillingu, hliðarmerkingar og fjölda mynda í hverri rannsókn. Í þriðja lagi var úrkast metið með því að telja myndir sem voru endurteknar. Í fjórða lagi var úrkast metið á þann hátt að telja þær myndir sem ekki bárust til úrlesturs.&#xd;
Niðurstöður:   Ófullkomin röntgenrannsókn: Hæst hlutfall ófullkominna rannsókna var á Egilsstöðum á því tímabili sem enginn geislafræðingur var við störf eða 17,3%. Lægst var það í Neskaupstað eða 0,9%. Helstu ástæður fyrir ófullkomnun voru vegna rangrar innstillingar og að það hafi vantað fleiri myndir í röntgenrannsóknir. &#xd;
 -Endurmat gæða: Á Vopnafirði fengu 67,9% rannsókna athugasemdir þar sem það var hæst en lægst var það í Neskaupstað eða 1,9%. Helstu ástæður fyrir athugasemdum voru vegna þess að það vantaði hliðarmerkingar og vegna rangrar innstillingar.&#xd;
 -Talning á myndum sem voru endurteknar: Á Vopnafirði voru oftast myndir endurteknar eða 6,2% mynda og sjaldnast í Neskaupstað eða 1,5%. Ástæða fyrir endurtekningum mynda var í 53% tilfella vegna rangrar innstillingar. &#xd;
 -Talning á myndum sem ekki voru sendar til úrlesturs: Hæsta hlutfall mynda sem ekki bárust til úrlesturs voru teknar á Egilsstöðum þegar ekki var geislafræðingur til staðar eða 9,4% mynda. Á Egilsstöðum þegar geislafræðingur var til staðar voru allar myndir sendar til úrlesturs. Heildarhlutfall úrkasts var hæst á þeim stöðum sem ekki voru geislafræðingar.&#xd;
Ályktanir:   Munur er á hlutfalli úrkasts og ófullkominna rannsókna á milli starfsstöðva. Heilbrigðisstofnun Austurlands ætti að stefna að því að búa til verklagsreglur yfir hvaða rannsóknir má gera á þeim stöðum sem ekki er geislafræðingur og bjóða öðrum starfsmönnum upp á þjálfun í framkvæmd rannsókna.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2016-05-02T14:16:44Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2016-05-02T14:16:44Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2016-05-02</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2016-05-02T13:06:06Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2016-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/24076</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Geislafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heilbrigðisstofnun Austurlands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Röntgenrannsóknir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gæðamat</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Geislafræðingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hlutfall úrkasts og ófullkominna röntgenrannsókna: Rannsókn gerð á starfsstöðvum Heilbrigðisstofnunar Austurlands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Undergraduate diploma</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>