<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T14:18:31Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/2442" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/2442</identifier><datestamp>2018-10-15T11:17:50Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Helga María Pálsdóttir 1982-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Björg Thorarensen 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Allt frá því að ákvæði um efnahagsleg og félagsleg réttindi kom fyrst inn í Stjórnarskrá Íslands árið 1874 og þar til mannréttindakafla stjórnarskrárinnar var breytt með stjskl. nr. 97/1995 reyndi aldrei á ákvæðið fyrir dómstólum. Menn voru á einu máli um það að ákvæði um efnhagsleg og félagsleg réttindi væru eingöngu pólitískar stefnuyfirlýsingar en ekki einstaklingsbundin réttindi sem hægt væri að byggt rétt sinn á fyrir dómstólum. Framsetning réttindanna gaf til kynna að ákvæðið kvæði eingöngu á um skyldu löggjafans til að setja lög um réttindin og það væri þannig í verkahring löggjafans að ákvarða nánar inntak réttindanna. Eftir stjórnarskrárbreytinguna breyttist afstaða dómstóla til stjórnmálalegs mats löggjafans og dómstólar teygja sig nú lengra inn á það svið sem áður var talið löggjafans. Dómstólar hafa byggt dóma á löggjöf og stjórnarskrárákvæði 1. mgr. 76. gr. sem áður var talin leiðbeinandi fyrir löggjafann. &#xd;
Staðan á alþjóðavettvangi var hin sama þrátt fyrir að viðurkennd afstaða alþjóðsamfélagsins sé að virða beri mannréttindi, með sama hætti alls staðar í heiminum, á sanngjarnan og jafnan máta, með sömu áherslum og á sama grundvelli. Erfitt hefur reynst að koma á virkri vernd með samningum um efnahagsleg og félagsleg réttindi með virkum úrræðum til að framfylgja þeim. Einstaklingar sem sætt hafa brotum af hálfu ríkisvaldsins á réttindum sem samningarnir tryggja, hafa ekki gátu ekki borið álitaefni undir eftirlitsstofnun. Þeirrar þróunar, að einstaklingar gátu í ákveðnum tilvikum byggt rétt sinn á ákvæðum um félagsleg réttindi fyrir tilstilli jafnræðisreglna fyrir dómstólum og stofnunum, fór að gæta á alþjóðavettvangi upp úr 1980. Álit Mannréttindanefndar SÞ um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi í máli Broeks gegn Hollandi var fyrsta dæmi þess. Mannréttindanefndin túlkaði jafnræðisreglu 26. gr. SBSR í því máli á þann hátt að vernd hennar nái einnig til réttinda sem aðrir samningar vernda. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur ekki gengið jafn langt í rúmri túlkun sinni á jafnræðisreglu MSE og Mannréttindanefndin gerir. Dómstóllinn hefur þó dregið úr kröfum um tengsl milli 14. gr. og annarra ákvæða samningsins.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2009-05-05T13:24:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2009-05-05T13:24:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2009-05-05T13:24:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/2442</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Mannréttindi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnskipunarréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnarskrá Íslands, 76. gr.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Alþjóðasamningar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Um 1. mgr. 76. gr. Stjórnarskrár Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>