<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-01T20:19:37Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/24655" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/24655</identifier><datestamp>2019-10-04T17:05:56Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2075</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Jónas Bjartur Kjartansson 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigurður Yngvi Kristinsson 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigrún Helga Lund 1982-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Ingigerður Sólveig Sverrisdóttir 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Inngangur: Hodgkin eitilfrumukrabbamein (HL) er hópur illkynja eitilfrumukrabbameina með uppruna í kímmiðju B fruma ónæmiskerfisins. HL er 0.4% allra greindra krabbameina í Svíþjóð og er aldursstaðlað árlegt nýgengi 2.0 af 100,000 hjá körlum og 1,7 af 100.000 hjá konum. Þekking á uppkomu sýkinga hjá HL sjúklingum er takmörkuð en vitað er um ónæmisbresti hjá þessum sjúklingum. Markmið rannsóknarinnar er að meta sýkingaráhættu HL sjúklinga. &#xd;
&#xd;
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er framskyggn, lýðgrunduð ferilrannsókn og byggir á gögnum úr sænsku krabbameins-, sjúklinga-, þjóð- og dánarmeinaskránum. Þátttakendur rannsóknarinnar voru allir einstaklingar sem greindust með HL í Svíþjóð á árunum 1980-2013. Fyrir hvern HL sjúkling voru valin allt að fjögur viðmið, pöruð eftir aldri, kyni og búsetu, sem voru á lífi á greiningardegi HL. Þátttakendum var fylgt eftir með tilliti til sýkinga og dauða eða þar til rannsókn lauk. Kaplan Meier ferlar eru notaðir til að sýna mun á uppkomu sýkinga og uppsafnaða áhættu milli samanburðarhópa. Cox aðhvarfsgreiningarlíkan var notað til að greina áhættuhlutfall (HR) með 95% öryggisbili (ÖB). &#xd;
&#xd;
Niðurstöður: Þátttakendur rannsóknarinnar voru 6.437 HL sjúklingar og 17.585 pöruð viðmið. Meðaleftirfylgnitíminn var 10,0 ár hjá HL og 13,6 ár hjá viðmiðum. Alls greindust 7.125 sýkingar á eftirfylgnitímanum, þar af voru 3.286 sýkingar í hópi HL sjúklinga og 3.839 í hópi viðmiða. Samanborið við viðmið voru HL sjúklingar í tölfræðilega marktækri aukinni áhættu að fá sýkingu (HR=3.98; 95% ÖB 3,57-4,44), þar af bakteríusýkingu (HR=3,33; 3,04-3,66), veirusýkingu (HR=4,87; 3,73-6,36) og sveppasýkingu (HR=4,54; 3,77-5,46). Áhættan var aukin fyrir bæði karla (HR=4,10; 3,46-4,86) og konur (HR=3,85; 3,39-4,37), samanborið við viðmið. Áhættan var aukin fyrir öll tímabilin, 1980-1989 (HR=3,53; 2,85-4,38), 1990-1999 (HR=3,94; 3,25-4,78) og 2000-2013 (HR=5,10; 4,29-6,05). Samanborið við viðmið var áhætta HL sjúklinga á sýkingu aukin í öllum greiningaraldurshópum, 0-14 ár (HR=11,00; 5,11-23,67), 15-29 ár (HR=4,94; 3,70-6,60), 30-44 ár (HR=5,56; 4,10-7,55), 45-59 ár (HR=3,34; 2,57-4,35), 60-74 ár (HR=3,33; 2,57-4,35) og ≥75 ár (3,46; 2,84-4,22). Tölfræðilega marktækur munur var á fjölda sýkinga fyrir greiningu á hópi HL sjúklinga og viðmiða (p&lt;0,001).&#xd;
&#xd;
Ályktanir: Sjúklingar með HL hafa verulega aukna áhættu á sýkingu eftir greiningu, hvort sem um ræðir bakteríu-, veiru- eða sveppasýkingu. Aukningu í sýkingaráhættu eftir tímabilum sem skoðuð voru má líklega skýra með öflugri meðferðum sem leiðir til meiri ónæmisbælingar.  Sýnt var fram á að uppkoma sýkinga fyrir greiningu er töluvert meiri en í viðmiðshóp, svo ekki er einungis hægt að tengja uppkomu sýkinga í þessum sjúklingum við ónæmisbælandi krabbameinslyf.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2016-05-13T16:41:26Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2016-05-13T16:41:26Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2016-05-13</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2016-05-13T16:05:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2016-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/24655</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Læknisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hodgkins-sjúkdómur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Eitilfrumukrabbamein</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sýkingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áhættugreining</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Rannsóknir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Sýkingar hjá sjúklingum með Hodgkin eitilfrumukrabbamein. Lýðgrunduð rannsókn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>