<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T07:27:09Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/25077" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/25077</identifier><datestamp>2025-10-29T15:14:11Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Guðrún Pálína Jónsdóttir 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þorvaldur Kristjánsson 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Á kynbótasýningum fyrir íslensk kynbótahross er lagt mat á átta eiginleika í sköpulagi hrossanna og sjö eiginleika hæfileika. Áður en hrossin fara í sköpulagsdóm eru þau mæld og tekin eru 11 skrokkmál á stóðhestum og sjö á hryssum. Markmið þessarar rannsóknar var að meta samhengi skrokkmála og dóma á sköpulagi íslenskra kynbótahrossa og kanna hvort og þá hversu mikið þessi skrokkmál hafa áhrif á dóma á sköpulagi.&#xd;
Gögnin voru fengin úr WorldFeng, upprunaættbók íslenska hestsins og innihéldu alla dóma á kynbótahrossum á Íslandi frá árinu 2000 til ársins 2015 (alls 11.392 dómar). Tölfræðiforritið SAS var notað við úrvinnslu gagna. Grunnlýsing á gögnunum var tekin saman og fervikagreining var framkvæmd til að meta samhengi á milli skrokkmála og sköpulagsdóma. Samhengi skrokkmálanna við aðaleinkunn sköpulags var skoðað, auk breyta sem voru reiknuð út frá skrokkmálunum. Samhengi á milli ákveðinna skrokkmála og reiknaðra skrokkmála við eiginleikana háls, herðar og bóga, bak og lend og samræmi var einnig skoðað.&#xd;
Helstu niðurstöður voru að hefðbundin skrokkmál og reiknuð skrokkmál höfðu marktæk áhrif á aðaleinkunn fyrir sköpulag. Þau mál voru: Hæð á herðar, Hæð á bak, Hæð á lend, Brjóstdýpt, Bollengd, Breidd um mjaðmarhorn, Breidd um lærleggstoppa, Breidd framleggs, Ummál framhnés og Ummál framleggs, Herðahæð, Framhæð, Legglengd, Hlutfall á hæð á herðar og lengd, Munar á lengd og hæð á herðum, Munar á lengd og hæð á lend og Form lendar. Breyturnar Legglengd, Hæð á herðar og Framhæð skýrðu stærsta hluta af heildarbreytileika aðaleinkunnar fyrir sköpulag. Niðurstöður leiddu einnig í ljós að breytan Herðahæða hafði marktæk áhrif á háls, herðar og bóga. Eins höfðu Baklína og Form lendar marktæk áhrif á eiginleikann bak og lend. Að lokum sýndu niðurstöður að Hæð á herðar, Legglengd, Framhæð og Brjóstdýpt höfðu marktæk áhrif á samræmi. Legglengd skýrði þar stærstan hluta af heildarbreytileika í einkunnum.&#xd;
Þessar niðurstöður sýna fram á hvernig ákveðnar stærðir og hlutföll í sköpulagi íslenska hestsins hafa áhrif á einkunnagjöf fyrir eiginleika sköpulagsins. Þær hjálpa til við að þróa á hvern hátt skrokkmálin eru nýtt við sköpulagsdóma og geta leitt til markvissari notkunar á þeim.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2016-06-07T11:26:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2016-06-07T11:26:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2016-06-07</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2016-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/25077</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynbótadómar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Líffærafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skrokkmál</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Samhengi milli skrokkmála og sköpulagsdóma hjá íslenskum kynbótahrossum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>