<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T07:46:18Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/25081" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/25081</identifier><datestamp>2025-09-10T12:27:57Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4484</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Jón Auðunn Bogason 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Bjarni D. Sigurðsson 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Aðal markmið rannsóknarinnar var að rannsaka áhrif breytinga á þéttleika og 11 ára árlegrar áburðargjafar á vöxt alaskaaspar (Populus balsamifera L. Subsp. trichocarpa (Torr. &amp; Gray ex&#xd;
Hook.) Brayshaw) í 25 ára gömlum tilraunaskógi í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Einnig hvort slík skógrækt hentaði til skammlotuskógræktar (&lt;30 ára lota) og að gera  arðsemisútreikninga fyrir hana, þar sem megin afurðin var iðnviðarkurl fyrir Elkem Ísland á Grundartanga.&#xd;
Gögnum um trjávöxt og framleiðni var safnað úr 24  rannsóknareitum með þrjá mismunandi þéttleika (10.000 tré/ha, 5.000 tré/ha og 2.000 tré/ha) og sem ýmist fengu árlega&#xd;
áburðargjöf (Áb) eða ekki (Ó) frá 2004. Í ljós kom að áburðargjöf með litlum áburðarskammti (33 kg N/ha) kjörblöndu í 11 ár jók meðalvaxtarhraða á árabilinu 2004-2014 um 86%, 157%&#xd;
og 185% miðað við óábornar meðferðir, og mældist hann 17,5, 15,7 og 9,4 m3/ha á ári fyrir Áb10.000, Áb5.000 og Áb2.000 sem er mjög hátt. Standandi bolviðarforði (yfir berki) var 236, 184&#xd;
og 106 m3/ha í sömu meðferðum, miðað við 133, 76 og 40 m3/ha í Ó10.000, Ó5.000 og Ó2.000. Við samanburð á grunnfleti meðferðanna þá var ljóst að Áb10.000, Áb5.000 og Ó10.000 voru komnir á þann stað í vaxtarferlinum að grisjun eða rjóðurfelling var tímabær við 25 ára aldur, á meðan að hinar meðferðirnar þurftu >30 ár til að ná þeim punkti.&#xd;
Brúttótekjur af rjóðurfellingu í mismunandi meðferðum voru metnar á bilinu 0,460 – 4,088 milljónir króna á hektara miðað við að allur nýtanlegur bolviður færi í Elkem kurl (a.m.k. 3 m&#xd;
bolir og a.m.k. >6 cm í mjórri enda) og afgangurinn færi í „fínt kurl“. Miðað við það þá skiluðu meðferðirnar Áb5.000 og Áb2.000 hagnaði upp á allt að 355.000 kr./ha og 198.000 kr./ha með ávöxtunarkröfu upp á 3,5%. Það er, skógræktin var efnahagslega sjálfbær og stóð undir öllum stofn- og rekstrarkostnaði landeiganda. Áb10.000 sem hafði mestan viðarforða stóð ekki undir sér vegna hærra hlutfalls mjórra trjáa (lægri nýting í Elkem) og aukins kostnaðar á hvern hektara. Aðrar meðferðir stóðu ekki undir sér fjárhagslega (þ.e. skiluðu ekki jákvæðu hreinu núvirði (NPV)) eftir 25 ára lotu. Ef eingöngu efni í Elkem kurl var tekið út úr skóginum þá stóð engin meðferð undir sér fjárhagslega miðað við framkvæmd skógræktarinnar í Gunnarsholti og gefnar forsendur um kostnaðarliði.&#xd;
Endurtekin áburðargjöf með kjörblöndu getur greinilega haft úrslitaáhrif hvort efnahagslega hagkvæmt sé að rækta alaskaösp í skammlotuskógrækt á fyrrum ræktarlandi ef frjósemi er takmarkandi. Arðsemisútreikningar byggja hinsvegar á mörgum forsendum um ræktunina og kostnað við skógarhöggið sem geta haft úrslitaáhrif á hagkvæmnina. Nokkrar slíkar forsendur&#xd;
eru skoðaðar nánar í ritgerðinni. Frekari rannsókna er þörf á bæði efnahagslegum og umhverfislegum áhrifum slíkrar ræktunar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2016-06-07T11:42:44Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2016-06-07T11:42:44Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2016-06-07</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2015-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/25081</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skógrækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Alaskaösp</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áburðargjöf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Skammlotuskógrækt með alaskaösp og áhrif áburðargjafar á hana</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>