<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T12:51:18Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/25084" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/25084</identifier><datestamp>2025-09-10T14:03:22Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Magnús Ingimarsson 1989-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Charlotta Oddsdóttir 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Guðmundur Jóhannesson 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Verkefni þetta er stöðumat á aðbúnaði kvígna á íslenskum kúabúum. Tilgangur verkefnisins var að öðlast yfirsýn yfir aðbúnað komandi mjólkurkúa í íslenskri mjólkurframleiðslu. Varpa þannig hugsanlegu ljósi á hvort uppeldisaðstæður komandi mjólkurkúa séu viðunandi með tilliti til gildandi reglugerða og hvort finna megi breytileika í slíkum aðbúnaði milli búsgerða, s.s. stærð búa, fjósgerða o.fl. Ný aðbúnaðarreglugerð fyrir nautgripi hefur nýlega tekið gildi og aðbúnaður húsdýra hefur fengið þónokkra umfjöllun síðustu misseri.&#xd;
Úttekt var framkvæmd á 33 kúabúum haustið og veturinn 2015. Fjósunum var skipt í 4 flokka, básafjós með mjaltakerfi (a), básafjós með mjaltabás (b), legubásafjós með mjaltabás (c) og legubásafjós með mjaltaþjón (d).&#xd;
Úttektinni má skipta í tvennt, annars vegar aðbúnaðarúttekt á uppeldisfjósi og hins vegar bændaspurningar og viðhorf þeirra. Aðbúnaðarþættir voru skoðaðir og úttekt framkvæmd á loftgæðum í gripahúsum, gólfgerðum stía, legusvæðum, fóðrunaraðstöðu, brynningu, hreinleika gripa og umhverfis og útivist. Í bændaspurningunum fólst viðhorfsmat, þar sem þeir voru beðnir um að gefa ákveðnum þáttum í aðbúnaðnum einkunn eftir mikilvægi eða hversu ánægðir eða óánægðir þeir voru með tiltekið atriði. Bændaspurningarnar voru einnig til að afla almennra upplýsinga um staðhætti og verklag við hirðingu gripa á búunum.&#xd;
Breytileiki aðbúnaðarþátta var mismikill, bæði milli fjósgerða og innan einstakra atriða. Engin af fjósgerðunum fjórum stendur annarri framar í aðbúnaðarþáttum. Nema þá að legubásar eru frekar til staðar fyrir kvígur í uppeldisfjósum fjósgerða c og d. Heldur meira átpláss er pr. grip í uppeldisfjósum a og b sem dæmi. Hvað varðar m2/grip í stíum með og án legusvæða þá gáfu niðurstöður ekki marktækan mun á plássi pr. grip innan aldursflokka 0-6 mánaða (p=0,2229) og 6-18 mánaða (p=0,3360) milli fjósgerða. Marktækur munur fannst á m2/grip milli fjósgerða fyrir gripi eldri en 18 mánaða (p=0,0001). Mest pláss hafa gripir 18 mánaða og eldri í uppeldisfjósum fjósgerðar d en minnst í uppeldisfjósum fjósgerðar b.&#xd;
Meginniðurstöðurnar voru þær að kvígur eru oftast haldnar í steinrimlastíu með brynningarskálum eða brynningarnipplum, með eða án legusvæðis (oftast án), sem gæti verið hálmsvæði, legubásar eða gúmmímottur. Átgrindur við fóðurgang eru oftast skágrindur sem allir gripir í stíu geta staðið við í einu. Engin regla virðist vera á hreinleika stía milli fjósgerða, allir möguleikar þekkjast innan hverrar fjósgerðar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2016-06-07T11:49:21Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2016-06-07T11:49:21Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2016-06-07</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2016-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/25084</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Nautgripir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aðbúnaður dýra</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Mjólkurframleiðsla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kvígur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Aðbúnaður kvígna á íslenskum kúabúum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>