<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T15:35:13Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/25093" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/25093</identifier><datestamp>2025-10-23T14:36:30Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sigurlína Erla Magnúsdóttir 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gunnar Reynisson 1974-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Viðfangsefni rannsóknarinnar var að kanna hvort munur væri á taumþrýstingi milli hliða hjá átta íslenskum hestum á milliferð á tölti. Fjórir knapar voru fengnir til að ríða öllum hestunum. Notast var við taumþrýstingsmæla frá Centaur sem mældu taumþrýsting hægri og vinstri tauma í Newton metrum. Rannsóknin fór fam í Þráarhöll á Hólum í Hjaltadal og notast var við 20m x 40m svæði. Einn hringur var riðinn á hægri hönd og einn á vinstri hönd til að gera greinamun á því hvort munur væri á taumþrýstingi hjá hestum og eða knöpum eftir því uppá hvora höndina var riðið. Við greiningu niðurstaðna var fyrst stuðst við mælingar á meðalþrýstingi á hægri og vinstri taumum hjá öllum hestum og öllum knöpum, óháð uppá hvora höndina var riðið. Þar á eftir var skoðað hvort munur kæmi fram á meðal þrýstingi vinstri og hægri tauma hjá hestum og knöpum eftir því hvort riðið var á hægri eða vinstri hönd.&#xd;
Marktækur munur var á taumþrýstingi milli hesta en ekki var um marktækan mun að ræða milli knapa. Á heildina litið var taumþrýstingurinn að jafnaði nokkuð jafn milli hliða, 23.5 N á vinstri taum og 22.62 N á hægri taum. Hæsti meðalþrýstingur á vinstri taum mældist 38.46 N og 40.26 N á hægri taum hjá hesti þrjú en lægsti meðalþrýstingur á vinstri taum var 6.35 N og 6.06 N á hægri taum hjá hesti eitt. Út frá mun á taumþrýstingi milli hliða eftir því upp á hvora höndina var riðið, kom fram áberandi munur hjá tveimur hestum, óháð knapa, þegar þeim var riðið á hægri hönd. Hjá hesti fimm var aukinn þrýstingur á innri taum (-5.225 N ) sem getur bent til að hann eigi erfitt með að sveigja sig til hægri og teygja á vinstri hliðinni. Hestur sjö var hinsvegar með áberandi aukinn þrýsting á vinstri tauminn þegar honum var riðið á hægri hönd (8.8 N). Getur það bent til að hann sé með sterkari vinstri hlið, sæki inn og eigi erfitt með að ganga samspora uppá hægri hönd.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2016-06-07T12:55:21Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2016-06-07T12:55:21Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2016-06-07</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2016-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/25093</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hestur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Taumþrýstingur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tölt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Taumþrýstingsmælar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Misstyrkur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Taumsamband</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Samanburður á taumþrýstingi milli hliða hestsins</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>