<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T05:20:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/25097" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/25097</identifier><datestamp>2025-10-29T14:08:21Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4483</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir 1975-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Ólöf Ýrr Atladóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sverrir Örvar Sverrisson 1979-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigríður Kristjánsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ferðaþjónustan hefur vaxið sem atvinnugrein á undanförnum árum. Talsverðar breytingar hafa orðið á umgjörð og rekstrarforsendum hennar. Landnotkun hefur breyst með tilkomu ferðaþjónustunnar og áhrif á íbúa og sveitarfélög eru að verða meiri, bæði jákvæð og neikvæð. Ferðaþjónusta getur skapað atvinnu, tekjur og stuðlað að byggðafestu, en á sama tíma nýtir atvinnugreinin sér ákveðna samfélagslega þætti og eins nýtir hún sér ákveðin almannagæði í starfsemi sinni.&#xd;
Áhrif ferðaþjónustunnar á innviði og grunngerð sveitarfélaga hafa lítið sem ekkert verið könnuð þrátt fyrir að fjölmörg sveitarfélög byggi í vaxandi mæli á ferðaþjónustu í atvinnustefnu sinni, að einhverju eða öllu leyti. Í ljósi þess er mikilvægt að sveitarfélög geri stefnumótandi áætlanir um það hvernig þau ætli sér að takast á við fjölda ferðamanna, umfang, uppbyggingu og þau áhrif sem ferðaþjónustan hefur á umhverfið. Mikilvægt er að móta framtíðarsýn um þá þætti í starfsemi sveitarfélaga sem snúa að ferðaþjónustunni s.s. skipulagsmál, innviði og grunngerð. Tryggja verður sjónarmið sjálfbærrar ferðaþjónustu, bæði hvað varðar varðveislu náttúruauðlinda og til að atvinnugreinin geti starfað í sátt við íbúa og ferðamenn.&#xd;
Með hliðsjón af ríkum áhrifum ferðaþjónustu á umhverfið sitt er áhugavert að skoða hvernig sveitarfélögin huga að ferðaþjónustunni þar sem sum þeirra eiga verulegra hagsmuna að gæta. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig ferðaþjónusta er skilgreind í aðalskipulagsáætlunum sveitarfélaga. Aðalskipulag er lögformleg skipulagsáætlun sveitarfélaga þar sem skilgreind er þróun landnotkunar og byggðar í sveitarfélaginu til a.m.k. 12 ára tímabils. Helstu niðurstöður eru þær að í mörgum aðalskipulagsáætlunum skortir á að skýrar og stefnumótandi áherslur séu settar fram þegar kemur að ferðaþjónustu eða uppbyggingu hennar í sveitarfélaginu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2016-06-07T14:10:06Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2016-06-07T14:10:06Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2016-06-07</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2016-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/25097</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aðalskipulag</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áfangastaðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ferðaþjónusta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skipulagsáætlanir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skipulagslög</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skipulagsreglugerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stefnumótun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þolmörk</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Skipulag, staða og stefnumótun ferðaþjónustu í aðalskipulagi sveitarfélaga á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>