<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-01T14:48:19Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/26173" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/26173</identifier><datestamp>2025-07-03T15:05:04Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4484</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hrafnkatla Eiríksdóttir 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Menja von Schmalensee 1972-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið þessarar rannsóknar var að kanna landnotkun þriggja hreindýrskúa úr Norðurheiðahjörð (norðvestan Jökulsár á Dal) m.t.t. áhrifa mismunandi búsvæða og árstíma. Þetta var gert með því að kortleggja heima- og kjarnasvæði dýranna á mismunandi tímabilum.&#xd;
Gögn um ferðir hreindýranna komu frá Náttúrustofu Austurlands, en þeim var aflað með því að festa hálsólar með GPS-staðsetningarbúnaði á hreindýrin. Með því móti fengust upplýsingar um staðsetningar þeirra á þriggja klukkustunda fresti yfir 12-15 mánaða tímabil. Landnotkun var greind í ArcGIS með sérhannaðri HRT viðbót. Landnotkunardreifing, þ.m.t. stærð og lega heima- og kjarnasvæða, fékkst með útreikningum á 25%, 50%, 75% og 90% líkindakúrfum sem reiknaðar voru með fastri þungamiðjulíkindadreifingu (e. fixed kernel density estimation) og href jöfnun. Þetta var gert annars vegar á öllu gagnasetti hvers dýrs og hins vegar fyrir fjögur skilgreind tímabil..&#xd;
Heimasvæði hreindýranna þriggja voru ólík að stærð og lögun eftir árstímum. Heimasvæði voru minnst á burðar- og fengitíma, en stærst yfir veiðitímann (að hausti), en þá var einnig minnst skörun á landnotkun dýranna. Þetta bendir til að á veiðitímanum hafi dýrin verið meira á ferðinni. Erfitt er að skýra það út frá líffræði dýranna og náttúrulegu umhverfi, en mögulega skýrist það að miklu leyti af áreiti veiðimanna. Skörun á heimasvæðum dýranna þriggja var mest um veturinn, en þá halda dýrin sig í stórum hópum á tiltölulega litlum, oft snjóléttum, svæðum.&#xd;
Kringilsárrani, Jökuldalsheiði og Tunguheiði voru mikilvægustu svæðin fyrir hreindýr í Norðurheiðahjörð á rannsóknartímanum, en þar mátti oftast finna kjarnasvæði á ólíkum tímabilum. Svæðin eiga það öll sameiginlegt að vera ágætlega gróin, rík af fléttugróðri og ekki snjóþung.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2016-09-20T15:06:40Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2016-09-20T15:06:40Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2016-09-20</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2013-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/26173</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hreindýr</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heimasvæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kernel útreikningur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landnýting</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Norðurheiðahjörð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Heimasvæði og landnotkun hreindýra í Norðurheiðahjörð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>