<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T04:59:03Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/26532" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/26532</identifier><datestamp>2018-10-15T11:26:50Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Kristín Jóna Kristjánsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hersir Sigurgeirsson 1972-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið ritgerðarinnar er að rannsaka hvernig sjóðstjórar sem fjárfesta á nýmörkuðum skilgreina, meta og takmarka pólitíska áhættu og hvaða áhrif hún hefur á fjárfestingaákvarðanir þeirra. Telja sjóðstjórar að pólitísk áhætta hafi aukist eða minnkað á undanförnum árum og hvort þeir telji að skilvirkni markaða og mat á pólitískri áhættu sé sambærilegt fyrir nýmarkaði og þróaða markaði. &#xd;
Ekki er til einhlít skilgreining á hugtakinu pólitísk áhætta. Skilningur á hugtakinu hefur þróast í tímans rás og segja má að hann endurspegli þau álitaefni sem uppi eru á hverjum tíma. Skilgreiningin á pólitískri áhættu sem notuð er í ritgerðinni er óæskilegt inngrip ríkisvalds, pólitískir atburðir sem hafa áhrif á starfsemi alþjóðafyrirtækja og rof í starfsumhverfi fyrirtækja vegna breytinga í valdakerfi lands og áhrif þess á hagnað þeirra.&#xd;
Rannsóknin er eigindleg og byggir á viðtölum við sjö sjóðstjóra og einn hagfræðing sem starfa hjá alþjóðlegum verðbréfafyrirtækjum. Fæstir þeirra höfðu velt fyrir sér skilgreiningu á hugtakinu pólitísk áhætta þótt þeir væru mjög meðvitaðir um þessa áhættu. Rannsóknin leiddi í ljós að viðmælendur meta almennt ekki pólitíska áhættu sérstaklega heldur blandast greiningin inn í annað áhættumat. Þeir verðleggja því pólitíska áhættu ekki sérstaklega en hún hefur hins vegar töluverð áhrif á fjárfestingaákvarðanir viðmælenda sem almennt forðast að fjárfesta á tilteknu svæði þegar áhættan verður of mikil. Viðmælendur virðast forðast Rússland sérstaklega sem og ýmis lönd Suður-Ameríku vegna stjórnarhátta og spillingar og tregða er til að fara aftur inn á þessa markaði þó sumir þeirra sjái tækifæri til að koma aftur inn á markaðinn á lægra verði. &#xd;
Ennfremur leiddi rannsóknin í ljós að þrátt fyrir að pólitísk áhætta sé mismunandi milli nýmarkaðsríkja töldu viðmælendur þróunina vera þá að almennt dragi saman með þróuðum mörkuðum og nýmörkuðum. Víða á nýmörkuðum dregur, að mati sjóðstjóra, úr pólitískri áhættu vegna aukinnar skilvirkni þó spilling sé enn mikið vandamál. Á sama tíma sé pólitísk áhætta að aukast á þróuðum mörkuðum og nefndu viðmælendur m.a. uppgang þjóðernissinna, Brexit og áhrif þess á Evrópusambandið, mikil inngrip seðlabanka Vesturlanda á eignamarkaði og mikla skuldsetningu ýmissa vestrænna ríkja.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2017-01-09T14:05:17Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2017-01-09T14:05:17Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2017-01-09</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2017-01-09T13:54:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2017-02</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/26532</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjárfestar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjárfestingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Mat á pólitískri áhættu. Rannsókn meðal sjóðstjóra sem fjárfesta á nýmörkuðum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>