<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T18:54:18Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/26822" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/26822</identifier><datestamp>2018-10-15T08:57:43Z</datestamp><setSpec>com_1946_2003</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2005</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sigtryggur Arnþórsson 1984-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Katrín Helga Hallgrímsdóttir 1976-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ef fyrirtækjakaup eru ekki efnd réttilega getur slík vanefnd leitt til tjóns samningsaðila. Á grundvelli samnings og að uppfylltum bótaskilyrðum, á kröfuhafi rétt á að skuldari bæti það tjón sem leiða má af röngum efndum samnings með skaðabótum. Markmið skaðabóta er að gera tjónþola eins settan fjárhagslega og ef tjón hefði aldrei orðið. Í ljósi þeirra fjölbreytilegu eigna, skulda, réttinda og skyldna sem saman mynda fyrirtæki, getur verið erfitt að meta raunverulegt tjón kröfuhafa. &#xd;
&#xd;
Fyrirtækjakaup geta verið flókin í framkvæmd, en hugtakið fyrirtæki er ekki sérstaklega skilgreint í íslenskum lögum. Um fyrirtækjakaup gilda lög nr. 50/2000, um lausafjárkaup, en engin sérlög gilda um kaupin þrátt fyrir flækjustig þeirra og þá miklu hagsmuni sem kunna að liggja að baki kaupanna. &#xd;
&#xd;
Fjallað er almennt um fyrirtækjakaup sem annars vegar kaup á félagi, m.ö.o. kaup á hlutum og hins vegar kaupum á fyriræki, m.ö.o. kaup á eignum. Þessar tvær tegundir af kaupum eru að nokkru leyti ólíkar í ljósi þess að kaupandi ber almennt beint hallann af vanefndum við kaup á fyrirtæki (kaup á eignum), á meðan félag sem sjálfstæður lögaðili ber oftast sjálft stóran hluta þess tjóns sem má leiða af vanefnd. Tjón kaupanda af félagi (kaup á hlutum) er því gjarnan afleitt á þeim grundvelli að félagið sé verðminna fyrir kaupanda vegna vanefnda sem leiða til þess að félagið fær lægri tekjur, á verðminni eignir, greiðir hærri útgjöld og/eða ber meiri skuldir, en kaupsamningur gerði ráð fyrir. Við kaup á fyrirtæki (kaup á eignum) verður tjóni kaupanda hins vegar jafnað við tjón fyrirtækisins þar sem kaupandi verður rétthafi allra eigna og skulda þess. Við kaup á félagi (kaup á hlutum) ber félagið sjálft réttindi og skyldur gagnvart því fyrirtæki sem félagið á og rekur, ekki er því hægt að jafna tjón kaupanda félags (kaup á hlutum) við það tjón sem vanefndir seljanda valda hinu keypta félagi.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2017-02-13T09:43:04Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2017-02-13T09:43:04Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2017-02-13</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2016-09-22T15:08:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2017-02</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/26822</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fyrirtæki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kauparéttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skaðabótaréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Ákvörðun fjárhæðar skaðabóta vegna vanefnda á fyrirtækjakaupum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Damages for Breach of Acquisitions</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>