<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T08:47:43Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/27504" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/27504</identifier><datestamp>2023-10-03T11:44:02Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Stefán Tómas Franklín 1993-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hersir Sigurgeirsson 1972-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessari ritgerð er reynt að varpa ljósi á hvernig fjármögnun íslensku viðskiptabankanna, Landsbankans, Glitnis/Íslandsbanka, Kaupþings/Arion banka, breyttist eftir einkavæðingu þeirra og fram að fjármálakrísunni 2008. Einnig er reynt að sýna fram á hvernig fjármögnun bankanna breyttist eftir bankahrunið og hvernig fjármögnunin lítur út í dag. Farið verður yfir hvaða áhrif einkavæðing bankanna hafði, þá samruna sem áttu sér stað í kjölfar einkavæðingarinnar og hvaða áhrif bætt lánshæfismat hafði á stöðu og vöxt íslensku bankanna. Farið er yfir skuldabréfaútgáfu bankanna á árunum fyrir hrun og þann vöxt sem átti sér stað hjá þeim með aukinni lántöku og yfirtökum á erlendum félögum. Greindir eru ársreikningar og ársskýrslur bankanna og farið yfir breytingar á innlánum og lántöku þegar bankarnir fengu aukinn aðgang að alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum. Bankahrunið á Íslandi hafði mikil áhrif á viðskiptalífið og almenning í landinu og í kjölfarið var lögum breytt og allt regluverk  í kringum starfsemi bankanna hert verulega til að koma í veg fyrir að slíkt gæti endurtekið sig. Farið er yfir tölur frá 2009, 2011, 2013 og 2015 til þess að fá heildarmynd yfir breytta fjármögnun bankanna í kjölfar hrunsins.&#xd;
Tilgangur ritgerðarinnar er að sjá hvort sýnilegur munur sé á fjármögnun íslensku bankanna fyrir og eftir hrun. Niðurstöðurnar benda til mikilla breytinga á fjármögnun þeirra. Skipting gömlu íslensku bankanna í tvennt þ.e. innlendan og erlendan hluta á grundvelli ákvæða neyðarlaganna leiddi til þess að fjármögnun þeirra  gjörbreyttist í kjölfarið. Sem dæmi má nefna voru innlán bankanna að meðaltali 40% af fjármögnun þeirra á árinu 2007 en á árinu 2015 voru innlán 70% af fjármögnun þeirra að meðaltali.  Ástæðum þess að fjármögnunin hefur breyst með þessum hætti er reynt að svara hér á eftir.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2017-05-11T16:02:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2017-05-11T16:02:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2017-05-11</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2017-05-11T15:28:19Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2017-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/27504</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Bankar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjármögnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Einkavæðing</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Bankahrunið 2008</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Fjármögnun íslensku viðskiptabankanna fyrir og eftir hrun: Áhrif einkavæðingar og aukins aðgangs að erlendum fjármagnsmörkuðum á fjármögnun íslensku bankanna</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>