<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T05:17:23Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/28184" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/28184</identifier><datestamp>2019-08-30T07:56:09Z</datestamp><setSpec>com_1946_6867</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_34317</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Axel Ingi Kristinsson 1994-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Kristófer Róbertsson 1994-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Einar Svansson 1958-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Fyrirtæki á íslenskum sjónvarpsmarkaði hafa gengið í gegnum miklar breytingar á síðustu árum. Innkoma erlendra efnisveita og stöðug tækniþróun hefur ekki aðeins breytt áhorfsvenjum neytenda heldur einnig hvernig þeir nálgast sjónvarpsefni. Í þessari ritgerð verður fjallað um þau áhrif sem tækniþróun og innkoma erlendra efnisveita hefur haft á leiðandi fyrirtæki á íslenskum sjónvarpsmarkaði. Ásamt því að farið verður yfir þær áherslur sem fyrirtækin hafa sett sér á tímum stöðugra tæknibreytinga og alþjóðavæðingar.&#xd;
&#xd;
Rannsókn var framkvæmd með eigindlegum rannsóknaraðferðum, þar sem skyggnst var inn í reynsluheim stjórnenda stærstu fyrirtækjanna á íslenskum sjónvarpsmarkaði. Settar voru fram fjórar rannsóknarspurningar, fyrst var rannsakað þau áhrif sem innkoma erlendra efnisveita hefur haft á íslenskan sjónvarpsmarkað. Því næst voru áhrif tækniþróunar á íslenskan sjónvarpsmarkað rannsökuð. Í þriðja lagi var framtíð línulegs áhorfs rannsökuð og síðast var staða auglýsinga á íslenskum sjónvarpsmarkaði rannsökuð.&#xd;
&#xd;
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að tækniþróunin sem og erlendar efnisveitur hafi haft umtalsverð áhrif á rekstur íslenskra fyrirtækja á sjónvarpsmarkaði. Þau hafi þurft að skerpa á sínum áherslum og jafnvel endurskoða reksturinn í heild sinni. Rekstur á sjónvarpsmarkaði sé næmur fyrir breytingum, huga þurfi að mörgum þáttum eins og samningamálum, breyttri neytendahegðun og tækniþróun en þessir þættir spili allir stór hlutverk á sjónvarpsmarkaði. Niðurstöðurnar gefa þó til kynna að íslensk fyrirtæki á sjónvarpsmarkaði séu samkeppnishæf gagnvart erlendu efnisveitunum. Þau muni geta sinnt hlutverki sem ekki er séð fram á að erlendar efnisveitur muni koma til með að sinna í náinni framtíð.&#xd;
&#xd;
Lykilorð: Auglýsingar, efnisveitur, línulegt áhorf, sjónvarpsmarkaður, tækniþróun.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2017-06-12T13:21:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2017-06-12T13:21:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2017-06-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2017-05-15T03:30:15Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2017-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/28184</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjónvarp</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Auglýsingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Dreifikerfi fjarskipta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Framtíð sjónvarps á Íslandi : áhrif erlendra efnisveita og tækniþróunar á íslenskan sjónvarpsmarkað</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>