<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T20:04:17Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/28326" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/28326</identifier><datestamp>2017-06-19T10:25:13Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_13487</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Heiða Jóhannsdóttir 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Ólöf Ásta Ólafsdóttir 1955-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Árið 2014 voru allar heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi að undanskildu Sjúkrahúsinu á Akureyri sameinaðar undir einum hatti, Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Heilbrigðisumdæmið nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri en um 400 km skilja að þessa tvo staði. Aðeins einn fæðingastaður er á upptökusvæði stofnunarinnar, á Akureyri. Áður fyrr voru fæðingar á mun fleiri stöðum og þær síðustu á Sauðárkróki og Húsavík lokuðu á árabilinu 2005¬¬–2009.Tilgangur þessa verkefnis er að skoða hvernig skipulagi barneignarþjónustu í dreifbýli er háttað, koma fram með hugmyndir um breytingar á þjónustusvæði Heilbrigðisstofnunar Norðurlands í samræmi við þjónustuþarfir kvenna, barna og fjölskyldna þeirra.Fræðileg samantekt sýnir fram á mikilvægi samfelldrar þjónustu frá sömu ljósmóður eða litlum hópi ljósmæðra fyrir upplifun af öryggi og útkomu fæðinga. Í íslenskum lögum er kveðið á um að heilbrigðisþjónustu skuli veita á viðeigandi þjónustustigi, að heilsugæsla skuli að öllu jöfnu vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga og að í mæðravernd eigi að veita þjónustu á viðeigandi og öruggan hátt. Mikilvægt er skoða hvernig og hvort skipulag barneignarþjónustu samræmist íslenskum heilbrigðislögum og hvernig hægt sé að efla og bæta þjónustu við barnshafandi konur á landsbyggðinni sem næst heimabyggð, allan sólarhringinn. Eins óútreiknanlegt og barneignarferlið er getur konan og fjölskylda hennar þurft á þjónustu að halda hvort sem er að nóttu eða degi.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2017-06-19T10:25:13Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2017-06-19T10:25:13Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2017-06-19</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2017-06-16T18:42:04Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2017-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/28326</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ljósmóðurfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Barneignarþjónusta og aðgangur að sólahringsþjónustu á landsbyggðinni, með áherslu á Heilbrigðisstofnun Norðurlands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>