<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T02:31:39Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/29169" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/29169</identifier><datestamp>2018-10-15T09:32:19Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2008</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Pálmi Freyr Sigurgeirsson 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Árni Sverrir Hafsteinsson 1980-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Gengi gjaldmiðla er áhættuþáttur í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja og hefur sterk staða íslensku krónunnar leitt til neikvæðra áhrifa á afkomu þeirra. Megintilgangur þessa rannsóknarverkefnis er að varpa ljósi á stöðu hótela og gistiheimila á Íslandi með tilliti til gengisþróunar íslensku krónunnar og rannsaka hvernig þau bregðast við gengisáhættu. Í verkefninu er fjallað um ferðaþjónustu í heild sinni, hótel og gistiheimili, gengisstyrkingu krónunnar og gengisáhrif. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð  til að fá innsýn inn í reynsluheim viðmælenda. Tekin voru viðtöl við fjóra einstaklinga sem starfa við fjármálastjórnun hjá ólíkum gistifyrirtækjum sem reka hótel og gistiheimili. &#xd;
&#xd;
Meginniðurstaða rannsóknarinnar er að gistifyrirtæki sem reka hótel og gistiheimili geta hagrætt hjá sér rekstri með ýmsu móti til draga úr gengisáhættu og ber þar hæst að minnka misvægi á milli hlutfalls tekna og gjalda sem fellur til í erlendri mynt. Það bendir til þess að fækkun langtímasamninga við ferðaskrifstofur í erlendri mynt og aukin áhersla á tekjustýringu á sölu til almennra viðskiptavina, geri gistifyrirtækjum kleift að standa betur að vígi gagnvart gengisáhættu en ella. Gistifyrirtæki geta einnig dregið úr gengisáhættu með framvirkum samningum og með erlendri lánsfjármögnun í sömu mynt og erlendu tekjurnar eru í.   Almenn gengisáhætta er þó ávallt fyrir hendi óháð því hvort tekjur fyrirtækja séu í erlendri mynt eða krónu því að gengisstyrking krónunnar gerir Ísland að dýrari áfangastað fyrir erlenda ferðamenn sem gæti dregið úr eftirspurn eftir gistiherbergjum á hótelum og gistiheimilum og jafnframt komum erlendra ferðamanna til landsins.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2017-10-17T14:19:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2017-10-17T14:19:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2017-10-17T14:19:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2017-08-18T09:20:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2017-09</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/29169</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lokaverkefni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gengismál</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gengisbreytingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ferðaþjónusta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hótel</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gistiheimili</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Gengisvarnir hótela og gistiheimila</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Currency hedging strategies used by lodging firms</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>