<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T22:01:18Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/30079" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/30079</identifier><datestamp>2018-10-15T09:39:13Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Birna Stefánsdóttir 1994-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir 1955-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Á undanförnum árum hafa samfélagsmiðlar verið notaðir í auknum mæli til að vekja athygli á og skapa umræðu um margskonar samfélagsleg vandamál. Myllumerki hafa verið notuð til gefa málefnum táknmynd og safna umræðum á sama stað á samfélagsmiðlum en oft er markmiðið líka að ná athygli stjórnvalda í þeirri von að þau geti tekið vandamálin fyrir á dagskrá stjórnvalda. En hvað þarf til að koma málum á dagskrá stjórnvalda?&#xd;
Markmið þessarar ritgerðar er að auka skilning á því hvernig opinber stefnumótun gengur fyrir sig og þá sérstaklega hvernig mál ná athygli stjórnvalda. Með meginrannsóknarspurningu ritgerðarinnar að leiðarljósi verður leitast við að varpa ljósi á það hvort og þá hvernig samfélagsmiðlar geti haft áhrif á dagskrá stjórnvalda með því að&#xd;
hafa áhrif á almenningsálitið. Gögn rannsóknarinnar eru fréttaumfjöllun fjölmiðla, efni sem birt var á samfélagsmiðlum, skriflegar heimildir og bækur. Leitað verður vísbendinga um hvort og þá hvernig umræða á samfélagsmiðlum hafi haft áhrif á almenningsálitið og þá mögulega á dagskrá stjórnvalda. Áhrif samfélagsmiðla verða könnuð með því að skoða aðdraganda þess að gerðar voru breytingar á ákvæðum um uppreist æru í almennum hegningarlögum nr. 19/1940. Farið verður yfir umræðuna sem&#xd;
myndaðist undir myllumerkinu #höfumhátt og atburðarásina sem leiddi til breytinga á ákvæðum um uppreist æru í lögum þann 28. september 2017. Í fræðilega hluta ritgerðarinnar eru teknar til umfjöllunar dagskrárkenningar, sérstaklega kenning Johns W. Kingdons um glugga tækifæranna og straumana þrjá, ásamt fleiri rannsóknum ogkenningum.&#xd;
Niðurstaðan var sú að í þessu afmarkaða tilviki hafi samfélagsmiðlar haft áhrif á að málefnið „uppreist æru“ komst á dagskrá stjórnvalda. Samfélagsmiðlar voru notaðir af brotaþolum Róberts Downeys og aðstandendum þeirra til að vekja athygli á málefninu og&#xd;
hafa áhrif á almenningsálitið. Samfélagsmiðlar, með hjálp fjölmiðla, héldu athygli á málefninu, gáfu því táknmynd og það má segja að áhrif þeirra hafi hraðað öllu stefnumótunarferlinu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2018-05-08T11:19:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2018-05-08T11:19:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2018-05-08T11:19:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2018-05-08T09:59:35Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2018-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/30079</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnmálafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ríkið</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Samfélagsmiðlar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjölmiðlar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Almenningsálit</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stefnumótun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">#höfumhátt: Áhrif samfélagsmiðla á dagskrá stjórnvalda</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>