<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T12:18:36Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/30148" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/30148</identifier><datestamp>2018-10-15T11:17:03Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hildur Grétarsdóttir 1985-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Guðrún Johnsen 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í lokaverkefni þessu er sett fram greining sem snýr að launum og hvatakerfum stjórnenda íslenskra félaga sem skráð eru á hlutabréfamarkað auk samanburðar við félög á dönskum markaði. Framboði opinberra upplýsinga eru gerð skil en íslensk félög kjósa flest að birta í ársreikningum sínum eins takmarkaðar og lítið sundurliðaðar upplýsingar og reglur leyfa á meðan dönsk félög veita almennt ítarlegri upplýsingar. Nýleg þróun í löggjöf Evrópusambandsins boðar frekari kröfur um upplýsingagjöf og gagnsæi.&#xd;
 Almennt hafa laun stjórnenda og stjórnarmeðlima farið hækkandi á því tímabili sem er til skoðunar, 2013-2016, bæði á Íslandi og í Danmörku. Á báðum mörkuðum eru vísbendingar um að hækkanir launakjara hafi á tímabilinu verið mestar hjá þeim stjórnendum sem hafa legið um mitt launabil, þ.e. á miðju því bili sem launagreiðslur hópsins lágu á, eða við neðri mörk þess. Á dönskum markaði hefur þróun síðastliðinna ára verið í þá átt að hvatakerfi og samsetning launa líkist sífellt meira því sem tíðkast hefur á öðrum mörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hlutur grunnlauna af heildarlaunum dregst saman og vænta fjármálaráðgjafar á dönskum markaði þess að sú þróun muni halda áfram á komandi árum. Aðeins tvö íslensku félaganna gáfu upplýsingar um grunnlaun stjórnenda. Hjá þeim fór hlutur grunnlauna hækkandi á tímabilinu 2013-2015 en hefur lækkað umtalsvert aftur árið 2016 sem gefur vísbendingar um að þóknanir aðrar en fastar þóknanir samkvæmt starfskjörum, s.s. kaupaukagreiðslur og langtímahvatar, færist aftur í aukana. &#xd;
Af þeim sautján íslensku félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað eru fimm, eða um 29%, sem gefa upplýsingar um hlutabréfatengda hvata á tímabilinu. Íslensku félögin fimm voru nokkuð einsleit í útfærslu sinna hvatakerfa, þ.e. í formi hefðibundinna kauprétta. Athygli vekur að algengasta form dönsku félaganna (57%) voru árangurstengd/skilyrt hlutabréf (e. performance/restricted stock unit) en ekkert íslensku félaganna hafði árangurstengt þá hlutabréfatengdu hvata sem veittir voru stjórnendum og starfsmönnum. Á bæði íslenskum og dönskum markaði hefur þróunin verið á þá leið að greiðslur til stjórnarmeðlima hafa farið hækkandi á tímabilinu, 2013-2016, hvort sem litið er til stjórnarformanna eða stjórnarinnar í heild sinni.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2018-05-09T10:53:25Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2018-05-09T10:53:25Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2018-05-09T10:53:25Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2018-05-08T20:27:11Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2018-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/30148</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnendur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kaupaukar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Launakerfi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ársskýrslur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Laun og hvatakerfi stjórnenda í skráðum íslenskum hlutafélögum 2013-2016</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>