<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T09:30:46Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/30211" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/30211</identifier><datestamp>2018-10-15T13:02:21Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2075</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hekla Sigurðardóttir 1993-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Kristjana Einarsdóttir 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Inngangur: Tíðni keisaraskurða hefur vaxið mikið síðustu áratugi og hefur sú þróun valdið áhyggjum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur sett fram að ásættanleg tíðni keisaraskurða sé á bilinu 10-15%. Samanburður milli landa og stofnana hefur verið erfiður vegna skorts á stöðluðum ábendingum fyrir keisaraskurði. Robson flokkunarkerfið var sett fram til að auðvelda mat, samanburð og eftirlit á tíðni keisaraskurða milli landa og stofnana. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lagði til notkun Robson flokkunar árið 2015 og er það notað víða með góðum árangri. Í Robson flokkuninni flokkast allar fæðandi konur í 10 flokka á grundvelli sex fæðingafræðilegra þátta. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða hópar kvenna eru líklegastir til að fara í keisaraskurð á Íslandi, hvaða hópar leggja mest til heildartíðni keisaraskurða og hvernig þessir hópar breyttust á tímabilinu 1997 til 2015. Auk þess að kanna tíðni fæðingaútkoma innan Robson hópa.&#xd;
Efni og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn og spannaði allar fæðingar 1997-2015. Gögnin voru úr Fæðingaskrá Embættis landlæknis. Hlutfallsleg stærð, tíðni keisaraskurða og hlutdeild í heildartíðni keisaraskurða var reiknuð fyrir hvern Robson hóp fyrir hvert ár og tímabilið í heild. Hlutfall milli Robson hópa 1 til 4 var reiknað fyrir hvert ár. Tíðni átta fæðingaútkoma var reiknuð fyrir hvern Robson hóp fyrir tímabilið: Framköllun fæðingar, keisaraskurður án hríða, keisaraskurður eftir upphaf hríða, áhaldafæðing, 3.-4. gráðu spangaráverkar, burðarmálsdauði, óhófleg blæðing, Apgar við 5 mínútur undir 7 stigum.&#xd;
Niðurstöður: Tíðni keisaraskurða á rannsóknartímabilinu var 16,4% og var stöðug og nærri þeim viðmiðum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með. Konur með sögu um fyrri keisaraskurð áttu stærsta hlutdeld í heildartíðni keisaraskurða (5,1%) og voru líklegastar til að fara í keisaraskurð. Aukning varð á tíðni framkallana á tímabilinu meðal frum- og fjölbyrja án sögu um fyrri keisaraskurð með einbura í höfuðstöðu fæddan á tíma en tíðni framkallana hjá frumbyrjum fór út 13% í 28% og hjá fjölbyrjum úr 12% í 23,7%. Þessi aukning virðist ekki hafa hækkað tíðni keisaraskurða en hún lækkaði um 1,1% til 4,8% innan þessara hópa á tímabilinu. Robson hópur 3 var hlutfallslega stærstur á tímabilinu (37,8%) og tíðni keisaraskurða var hæst innan Robson hóps 9 (97,6%).&#xd;
Ályktun: Tíðni keisaraskurða á Íslandi er nærri þeirri tíðni sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með og var stöðug á rannsóknartímabilinu. Fjölgun framkallana virtist ekki auka tíðni keisaraskurða. Hlutdeild hóps kvenna með sögu um fyrri keisaraskurð í heildartíðni keisaraskurða er hæst og eru konur í þeim hóp líklegastar til að fara í keisaraskurð. Áherslu ætti að leggja á að komast hjá fyrsta keisaraskurði, til að draga úr líkum á fleiri keisaraskurðum síðar á ævinni.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2018-05-11T09:14:48Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2018-05-11T09:14:48Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2018-05-11T09:14:48Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2018-05-10T19:48:11Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2018-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/30211</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Læknisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Keisaraskurðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Tíðni keisaraskurða á Íslandi 1997-2015 með notkun Robson flokkunar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>