<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-01T14:25:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/30413" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/30413</identifier><datestamp>2018-10-15T13:02:19Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2075</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Þorvaldur Bollason 1993-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Helgi Birgisson 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Páll Helgi Möller 1960-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Tryggvi Björn Stefánsson 1949-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Agnes Smáradóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Laufey Tryggvadóttir 1954-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Meðferðir og gæðaskráning við krabbameini í endaþarmi árið 2016 		&#xd;
Þorvaldur Bollason&#xd;
Inngangur: Krabbamein í ristli eða endaþarmi er þriðja algengasta krabbamein á Íslandi hjá bæði körlum og konum. Í þessari rannsókn skoðuðum við krabbamein í endaþarmi sér. Gæðaskráning hefur verið við lýði í Svíþjóð frá 1995 fyrir krabbamein í endaþarmi. Markmið rannsóknarinnar var að meta hlutfall læknanlegra aðgerða, tíðni fylgikvilla og notkun geisla- og lyfjameðferðar við krabbameini í endaþarmi.&#xd;
Efni og aðferðir: Öll krabbamein í ristli og endaþarmi greind árið 2016 á Íslandi voru skráð í fjögur skráningareyðublöð í Heilsugátt. Eyðublöðin voru gerð að sænskri fyrirmynd. Upplýsingar um sjúklinga, meðferðir, fundi, stigun, legu o.fl. fengust úr Heilsugátt, Sögu, Orbit og millistofnanaforritum í Sögu. Skráningar sjúklinga með krabbamein í endaþarmi voru teknar út úr Heilsugátt til úrvinnslu. Úrvinnsla fór fram í Excel. Samanburður var gerður við ársskýrslur sænsku gæðaskráningarinnar. &#xd;
Niðurstöður: Alls greindust 44 tilfelli af krabbameini í endaþarmi á Íslandi og 2180 í Svíþjóð árið 2016. Hlutfall aðgerða með brottnámi var hærra á Íslandi, 31 (70%) fór í brottnám á Íslandi á meðan 1384 (63%) fóru í brottnám í Svíþjóð. Hlutfall sjúklinga sem voru teknir fyrir á fundi fyrir meðferð var 72% á Íslandi en 98% í Svíþjóð. Af þeim sem fóru í brottnám voru 61% tekinn fyrir á fundi eftir aðgerð á Íslandi en 95% í Svíþjóð. Af þeim sjúklingum sem fóru í brottnám, fór 61% í geisla-/lyfjameðferð fyrir aðgerð á Íslandi og 67% í Svíþjóð. Hlutfall sjúklinga sem fékk viðbótarmeðferð fyrir aðgerð var nokkuð jafnt milli landanna, nema fyrir krabbamein á bili 6-10 cm frá anal brún. 30% af þeim fengu viðbótarmeðferð á Íslandi en u.þ.b. 65% í Svíþjóð. Af öllum sjúklingum sem fóru í brottnám fengu 80% með sjúkdómssstig II viðbótarmeðferð sem og 87% með sjúkdómssstig III og 66% með stig IV. Engir með sjúkdómsstig I fengu viðbótarmeðferð fyrir aðgerð. 56% þeirra sem voru yngri en 75 ára og 32% þeirra sem voru 75 ára eða eldri fengu viðbótarmeðferð fyrir aðgerð. Af þeim sem fengu lyfja- og geislameðferð fyrir aðgerð voru 15% með fullkomna svörun (complete responce; cT0). Alls fengu 8 (26%) viðbótarmeðferð eftir brottnám á Íslandi. Þeir voru allir undir 75 ára og með stig III á meinafræðisvari. Hlutfall stig III, &lt;75 ára sem fengu viðbótarmeðferð eftir aðgerð var mun hærra á Ísland. 89% fengu meðferð á Íslandi en u.þ.b. 56% í Svíþjóð. Meðferðin á Íslandi var með Xelox (63%) eða Xeloda (38%) skema. Hlutfallið var 50% hvort í Svíþjóð. &#xd;
Ályktanir: Rannsóknin gaf yfirsýn yfir hvernig meðferð við krabbameini í endaþarmi var háttað á Íslandi árið 2016 og gagnsemi samanburðar við sjúkrahús í Svíþjóð. Rannsóknin sýndi einnig fram á möguleika á og nauðsyn þess að framsýn gæðaskráning verði tekin upp á Íslandi. Meðferð var að mörgu leyti svipuð milli landanna en munur sást sem vert er að athuga nánar. Þar má nefna að hlutfall samráðsfunda var lægra hér á landi og að staðsetning krabbameins í endaþarmi var ekki stöðluð. Einnig var munur á viðbótarmeðferðum, bæði fyrir og eftir aðgerð. Rannsóknin var aftursýn þar sem eyðublöð voru fyllt út út frá rannsóknum, aðgerðalýsingum og deildarskrám.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2018-05-15T14:11:20Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2018-05-15T14:11:20Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2018-05-15T14:11:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2018-05-15T13:03:46Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2018-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/30413</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Læknisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Endaþarmskrabbamein</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Krabbameinslækningar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Meðferð og gæðaskráning við krabbameini í endaþarmi á Íslandi árið 2016</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>