<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T06:50:31Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/3079" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/3079</identifier><datestamp>2018-10-15T09:41:22Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Jón Ingi Þorvaldsson 1984-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Eiríkur Jónsson 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ærumeiðingar eru brot á lögum og settum reglum sem löggfjafinn hefur talið nauðsynleg  til verndar æru manna. Um langan tíma hefur æran notið verndar í almennum hegningarlögum nr. 19/1940(hér eftir oft nefnd hgl.) en einnig er kveðið á um vernd hennar í skaðabótalögum nr. 50/1993. Skaðabótamálin hafa verið meira áberandi á síðustu árum og ekki síst í ljósi þess að þjóðþekktar persónur hafa átt aðild að þeim í mörgum tilfellum. Upplýsingaflæðið verður meira með hverjum deginum og opnast nýjar leiðir reglulega til að koma upplýsingum og skoðunum sínum á framfæri. Því er ekki ólíklegt að á komandi árum muni reyna en frekar á meiðyrðalöggjöf enda gott orðspor gífurlega mikilvægt í harðnandi samkeppni í lífinu.&#xd;
Tvær mikilvægar grundvallarreglur í stjórnarskránni rekast á þegar unnið er úr lögum sem taka á ærumeiðingum. Þessar grundvallarreglur eru tjáningarfrelsið 73 gr. stjórnarskrár Íslands nr. 33/1944(hér eftir nefnd stjsk.) og friðhelgi einkalífs 71. gr. stjsk. Tjáningarfrelsið er mikilvægt í nútíma þjóðfélagi og hefur almenningur rétt á því að öðlast þekkingu og viðra hugmyndir sínar án afskipta stjórnvalda eða annarra. Það sama á við um mikilvægi friðhelgi einkalífs, upplýsingaflæðið er mikið og vernd einkamálefna bíður þess oftar en ekki hnekki. &#xd;
Í eftirfarandi umfjöllun mun verða beint sjónum að meginreglunni um „exceptio veritatis“ sem hægt er að nefna á íslensku sannindi ummæla sem ábyrgðarleysisástæða. Við þá umfjöllun er nauðsynlegt að fjalla einnig almennt um ærumeiðingar ásamt hugtökum og lagagreinum.&#xd;
Þessi meginregla á djúpar rætur og er ekkert nýmæli í íslenskri löggjöf. Markmiðið með umfjöllun þessari er að skýra frá helstu grunnskilyrðum og réttaráhrifum reglunnar. Farið verður yfir þær sönnunarkröfur sem gerðar eru og nokkrar undantekningar sem bæði hafa myndast í dómaframkvæmd og lögfestar hafa verið. Ætlunin er ekki að fjalla um þetta efni með tæmandi hætti heldur gefa innsýn í það hvernig reglunni „exceptio veritatis“ hefur verið beitt í íslenskri dómaframkvæmd.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2009-06-23T12:00:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2009-06-23T12:00:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2009-06-23T12:00:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/3079</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meiðyrði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skaðabótaréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Málfrelsi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ærumeiðingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Sannindi ummæla sem ábyrgðarleysisástæða í meiðyrðamálum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>