<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T12:10:55Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/31284" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/31284</identifier><datestamp>2018-10-12T11:16:16Z</datestamp><setSpec>com_1946_6867</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_6869</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Alexandra Kjærnested Arnarsdóttir 1993-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Margrét Einarsdóttir 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Réttarstaða útsendra starfsmanna á Evrópska efnahagssvæðinu: Inntak og túlkun tilskipunar 96/71/EB um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu og íslenskur réttur. &#xd;
Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á réttarstöðu útsendra starfsmanna á Evrópska efnahagssvæðinu og hér á landi. Útsendur starfsmaður er starfsmaður sem sendur er af atvinnurekenda í því skyni að veita þjónustu í tiltekinn tíma á yfirráðasvæði annars EES-ríkis en þess sem hann starfar venjulega í. Útsendir starfsmenn gegna mikilvægu hlutverki á innri markaði og þá sérstaklega í tengslum við frjálsa þjónustustarfsemi milli EES-ríkja. Réttarstaða útsendra starfsmanna á Evrópska efnahagssvæðinu hefur valdið miklum ágreiningi þar sem ekki hefur náðst jafnvægi á milli reglna innri markaðar og félagslegrar verndar útsendra starfsmanna. &#xd;
Í ritgerðinni verður fjallað um frelsið til að veita þjónustu og ástæður þess að útsendir starfsmenn falla undir reglur 36.- 39. gr. EES-samningsins. Þá verður gert grein fyrir inntaki tilskipunar 96/71/EB um útsenda starfsmenn. Með tilskipun 96/71/EB um útsendra starfsmanna var reynt að samræma lágmarksreglur um útsenda starfsmenn og setja viðeigandi vernd fyrir þá. Næst verður dómaframkvæmd Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins reifuð ítarlega. Töluvert hefur reynt á réttindi útsendra starfsmanna fyrir Evrópudómstólnum og hefur túlkun dómstólsins valdið miklum ágreiningi. &#xd;
Þá verður vikið að réttarstöðu útsendra starfsmanna á Íslandi. Tilskipun 96/71/EB um útsendra starfsmanna var innleidd með lögum nr. 45/2007. Verður fjallað um ákvæði laga nr. 45/2007 og lagt mat á hvort lögin samrýmast tilskipun 96/71/EB um útsendra starfsmanna. Stuttlega verður gert grein fyrir breytingartillögu laga nr. 45/2007 sem hefur verið lögð fyrir Alþingi. Jafnframt verður fjallað um mál Primera Air Nordic sem reyndi á gildissvið laga nr. 45/2007 og heimildir íslenskra stéttarfélaga gagnvart erlendum þjónustufyrirtækjum. Að auki verður litið til tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um breytingar á tilskipun 96/71/EB um útsendra starfsmanna. Að lokum verða aðalatriði ritgerðarinnar dregin saman og gert grein fyrir niðurstöðum höfundar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2018-06-18T11:28:16Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2018-06-18T11:28:16Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2018-06-18T11:28:16Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2018-05-13T23:20:27Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2018-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/31284</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Réttarstaða</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Evrópska efnahagssvæðið</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Farandverkafólk</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Réttarstaða útsendra starfsmanna á Evrópska efnahagssvæðinu: Inntak og túlkun tilskipunar 96/71/EB um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu og íslenskur réttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>