<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-11-27T15:07:39Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/32497" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/32497</identifier><datestamp>2019-03-11T11:41:12Z</datestamp><setSpec>com_1946_29723</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_29725</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Einar Örn Gunnarsson 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Rán Tryggvadóttir 1959-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Útdráttur&#xd;
Ritgerð þessi er á sviði höfundaréttar og fjallar að meginefni um 16. gr. höfundalaga svo og h-lið 3. mgr. 5. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2001/29/EB frá 22. maí 2001.&#xd;
Ákvæði 16. gr. höfundalaga, nr. 73/1972, tekur til þeirrar heimildar að taka og birta myndir af byggingum svo og listaverkum sem staðsett hafa verið varanlega utanhúss á almannafæri án sérstaks samþykkis listamannsins eða arkitektsins. Sé mynd sem gerð er af verki eða byggingu aðalatriði myndar og hún hagnýtt til markaðssölu á höfundur rétt til þóknunar, nema um blaðamyndir eða sjónvarpsmyndir sé að ræða. Lagagreinin er í II. kafla höfundalaga sem nefnist Takmarkanir á höfundarétti og umsýsla höfundaréttar á grundvelli samningskvaða en þar er að finna undantekningar á einkarétti höfundar til eintakagerðar og birtingar.&#xd;
Miklar og örar tækniframfarir hafa átt sér stað síðan ákvæði 16. gr. höfundalaga var lögfest.&#xd;
Vegur hér þyngst tilkoma internetsins og stafræn miðlun upplýsinga.&#xd;
Í Evrópu hefur átt sér stað mikil umræða um gildi undantekninga frá einkarétti höfunda og stöðu höfundaverka sem staðsett eru varanlega í almannarými, svo og heimildir til að taka og birta myndir af slíkum verkum án samþykkis höfundar líkt og 16. gr. höfundalaga tekur til svo og h-liður 3. mgr. tilskipunar 2001/29/EB.&#xd;
Ekki hefur áður í íslenskum greinum, ritgerðum né fræðibókum á svið lögfræði verið fjallað ítarlega um réttarfyrirbærið og ekki er að finna sérstakt íslenskt hugtak yfir það. Höfundi ritgerðar þessarar var nokkur vandi á höndum þegar kom að íslenskun hugtaksins en að athuguðu máli þótti höfundi hugtakið panóramaheimildin viðeigandi.&#xd;
Í ritgerðinni er gerð grein fyrir efnisþáttum 16. gr. höfundalaga og ákvæðið borið saman við viðlíka ákvæði í erlendum rétti.&#xd;
Í inngangskafla ritgerðarinnar er varpað fram þremur rannsóknarspurningum. Í fyrsta lagi, hvort 16. gr. höfundalaga hafi staðist tímans tönn með tilliti til örrar tækniþróunar og breytinga á evrópsku og alþjóðlegu lagaumhverfi. Í öðru lagi, hvort breytinga sé þörf á ákvæðinu. Í þriðja lagi, hvort þörf sé á samræmdari reglum á innri markaði Evrópusambandsins hvað varðar panóramaheimildina í h-lið 3. mgr. 5. gr. InfoSoctilskipunarinnar.&#xd;
&#xd;
Að mati höfundar hefur 16. gr. höfundalaga staðist efnislega tímans tönn að mestu leyti þó orðfæri hennar sé nokkuð fornfálegt. Þörf er á breytingum á ákvæðinu bæði til þess að færa orðalagið nær nútímanum svo og að skerpa á eiginlegu efnisinntaki þess. Ákvæðið er aukinheldur í fullu samræmi við alþjóðasamninga og skuldbindingar sem Ísland er aðili að.&#xd;
Vegna ólíks regluverks er lýtur að panóramaheimildinni í Evrópu hefur tilgangi InfoSoctilskipunarinnar ekki verið náð og má segja að ósamræmt regluverk vinni gegn tilgangi tilskipunarinnar. Vegna þessa ástands er það niðurstaða höfundar að samræma þurfi  regluverk ríkjanna.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2019-03-11T11:41:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2019-03-11T11:41:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2019-03-11T11:41:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2019-02-22T11:59:13Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2018-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/32497</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Höfundarréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Einkaleyfi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Listaverk</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Höggmyndir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Almenningsrými</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Panóramaheimildin í 16. gr. höfundalaga nr. 73 frá 1972 og h - lið 3.mgr. 5. gr. tilskipunar 2001/29/EB</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">The panorama exception in article 16 of the Icelandic copyright act no. 73 from 1972 and paragraph 3(h) article 5 of directive 2001/29/EC</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>